voodoo
Ætti að vera læra en ég get það alls ekki, þar sem það er ekki mennskt að skrifa meira en 237 orð um steinflugur, og það er farið fram á 1000.
Ég fór að velta fyrir mér einu...hlutirnir eru endalaust að breytast...stundum fyrir það betra, stundum verra, stundum stórt og stundum lítið.
Stundum smátt og smátt og stundum allt í einu.
Ástæðan fyrir því að ég byrjaði að hugsa um þetta er að ég var að fatta að besti vinur minn er ekki hérna lengur, besta vinkona min ekki heldur....og það fattaði ég í raun smátt og smátt en eg gerði mér aldrei grein fyrir hversu mikklu þetta myndi breyta..oki ég á fullt af vinum hérna og það góðum og er langt frá því að vera eitthvað einmanna eða leiður yfir því að þau 2 séu farin ásamt fleirum sem maður hefur séð daglega í 10 ár. Þá tekur maður eftir eftir þessu á einhverjum tímapunkti.
Og svo er það, alltaf þegar einhver flytur eða fer annað og upplyfir eitthvað í x langan tíma kemur sú manneskja til með að gera það sem mönnum er eðlilegt að gera.....aðlagast sýnu nýja umhverfi og gleyma fornum siðum, sem akkurat ég er hræddur um að hinn lausláti vinur minn komi til með að gera, hann valdi versta staðinn til að fara á því ég tel hann enn ómótaðan skólptur...hann er fljótur að grípa mót og fyllir sig út í það, aftur og aftur breytist þessi drengur og nu er hann komin í hnakkabælið, guð minn góður eg vona að sá Hilmar sem ég þekki sleppi lifandi frá þessum stað, en bið bæði hann og alla aðra að taka þessu nu ekki bókstaflega þar sem eg er nu ekki alveg svona dramatrískur á þetta í raun en þetta er fínnt lesefni
útlit þessara síðu mun breytast nu á næstuni og mun aðeins nýlegri mynd af mér fara í banner, en ég leyfi myrkrinu og svarta litnum en að njóta sín hérna því það kemur ekkert annað til greina, ég skal eyða mínum tíma og ykkar í að segja afhverju ég vill hafa flest svart..
svartur er hlutlausasti liturinn, hann getur táknað hamingju eða sorg, mikið eða lítið, þegar maður er ógeðslega þreyttur getur maður horft á hann annað en gulan og hvítan eða bleikann.
Svart er málið og þið vitið það.
Það er paintball mót hérná á höfn einhvurtíman á næstu mánuðum og auglýsi ég hér með eftir áhugasömum hermönnum í liðið mitt og BR :)
Það sem skólan varðar þá er hann kominn í fullan gang og er eg alveg sáttur með hlutina en lýg eigi, mig langar í burt, nánast sama hvert bara að prófa eitthvað nýtt í einhvern tíma, en held ég útskrifist héðann.
Ég stefni enþá á það að útskrifast á FÉ braut og fara svo í háksólann i heimsspeki, og eftir það langar mig að læra stjórnmálafræði en vá hvað ég veit ekkert hvað mig langar til að verða.
Ahh vá ég er búinn að vera svo lengi með þetta littla blogg að ég ætla að hætta núna, vá hvað ég er orðinn lélegur í þessu


Ef að þið Hilmar eruð góðir vinir þá skptir ekki máli hvar í heiminum hann er vináttan breitist ekki þó að þið eruð hættir að hittast á hverjum degi og svo leiðir tíminn það í ljós hvernig þessi vinátta fer. Vona að makinn þinn, hvort sem það sé karl eða kona, verði þinn besti vinur því það er ávísun á hamingjuríkt líf.