22október

LKN verkefni, afhverju ekki ađ skella ţví inn?

-|  Siðferði er í raun ekkert nema smekkur og skoðanir okkar sjálfa, Hvernig okkur finnst að hlutirnir eiga að vera, hvernig okkur finnst rétt að vera á almenningi og hvernig almenningur á að hegða sér.

Að sjálfsögðu stjórnum við „hinum“ ekki neitt en siðferði er stæðist þátturinn í þvi´hvað mótar okkur sem manneksju og er hún(siðferðin) okkar stæðsta auðkenni.

Siðferði er ekkert annað en skoðanir okkar, hugsanir og afstöður.

-| Siðfræði er það sem liggur á bakvið siðferði, siðfræði eru siðir sem okkur er kennt og reglur sem okkur er sagt að fylgja, við veljum í raun sjálf alveg hvaða reglum við fylgjum og hvað ekki en okkar reglur þurfa að vera í samræmi við alheimin, við getum ekki farið og drepið fólk vegna þess það er rétt í okkar augum, okkar reglur verða standa samhliða almennum reglum.

Stæðsta dæmi sem hægt er að taka um Siðferðisklemmu, en það er þegar siðferði og siðfræði stangast á, það er hvort klósettsetu skal lokað eða ekki eftir notkun, en ég mun ekki taka það fyrir.

Ég vill halda áfram með fóstureyðingu.

Ég vill byrja á að segja að lífið snýst allt um val og eigum við ekki að hindra frjálst val á svona hlutum. Eða bara einhverjum hlutum, Kennari tók fyrir öfgadæmi þar sem sama stelpan fór 5sinnum á sama árinu í fóstureyðingi, í fyrsta lagi, þá hlítur eitthvað að vera að þeirri manneksju ef hún getur drepið fóstur eftir fóstur og breytir ekkert sínum lífstíl eða drullast til að kaupa smokk, EN það breytir ekki þeirri staðreynd að við eigum ekki að banna henni að gera það.

Að sjálfsögðu er þessari manneksju beinnt á sálfræðing ef ekki geðlækni og gert eitthvað  til að fræða hana um skaðsemina sem hún er að gera sjálfum sér og tilvonandi lífi.

Og  ætti að skoða það að biðja hana um að eiga og gefa barnið til ættleiðinga.

En það væri alfarið hennar val.

Meina ok, seigum sem svo að við bönnum þessari manneksju að eyða fósti og hún eignast barn, og þar sem henni finnst sjálfsagður hlutur að eyða þessu aftur og aftur þá upplyfir hún ekki móðurtilfinninguna og bindir sig enganveigin við þetta barn og þetta barn mun ekki lifa til árs aldur, hvað erum við þá að sanna? Tala nu ekki um ef hún hefur ekki aðstöðu til að ala upp barn.

En segjum svo að hún reyni sitt besta, og allt gangi upp, þá erum við búin að breyta þessari manneksju en líkurnar munu ALDREI verða barnslífs virði.

Svo vill ég líka benda á þann möguleika að stelpan gæti þess vegna reykt og drukkið eins og svín á meðgöngu og myndi þá barnið geta fæðst algjörlega ónýtt í þennann heim.

Ég veit að ég er ekki að fara nóg í hvert einasta dæmi en ég bara stend í tímaþröng þar sem þetta er tímeverkefni. Ekkert sem ég get gert í því.

    

-| Fordómar eru það sem ég kalla „stimpla“

Ég persónulega reyni að forðast alla stimpla, en það getur alltaf eitthvað volltið út úr manni sem  fólk miskylur og þá er það markmið feill.

Það eru alltof fáir sem taka sér virkilegan tíma í að kynna sér þá hluti sem þeir eru á móti, Ef þú villt hata eitthvað, kynnir þér það, kemmst að öllu sem hægt er að vita og enþá berðu óhug til þess áttu fullan rétt á að vera á móti viðkomandi hlut eða persónu.

Fyrir þetta vill ég taka fyrir oftrúa, og þá ætla ég að taka fyrir einn sérstakann oftúa sem ég man því miður ekki hvað heitir, en fordómar eru algengastir hjá ófsatrúa mönnum og getur engin sagt mér annað.

Þessi maður var á Hornafirði einhverja helgi og lennti ég á háværu tali við hann, þú rökræðir ekki við mann sem að telur sig hafa svör alheimsins, allt sem er annað en hann segir er rangt og þannig er það bara, og ef hann lendir á einhverjum sem svarar honum og nær að klára orð hans byrjar hann bara að syngja, ég fór frá þessum manni alveg brjálaður í skapi vegna þess að þessi maður vildi ekki virða það að ekki allir væru sömu trúar og er það eitt sem mér finnst bibblían vera að gleyma að kenna og það er siðferði gegn öðrum skoðunum, en hún mun aldrei gera það þess vegna á þjóðkirkjan að vera slitinn frá ríkinu svo að stór stofnanir landsins verði HLUTLAUS hvað varðar trú og skoðanir fólks.

Ég reddaði mér ævisögu þessa mans og mér til frekari skemmtunar las ég nýja testamenntið....aftur

Og lærði allt það sem mér gafst kostur á við þennan mann.

Hann er óvirkur alski sem var söngvari og missti líf sitt í eiturlyf og fleira rugli, hann átti erfiða æsku þar sem faðir hans barði hann og mamma hans yfirgaf hann snemma, um 12 ára aldur ef mig minnir rétt var honum komið fyrir á kristilegu fóstuheimili og þar byrjaði hann að syngja fyrir kirkjukór, eftir að hann var 18 fór hann af fóstuheimilinu og fór að gerast söngvari á skemmtistöðum og kynntist hann þar áfengi, Hann tók eftir því að áfengi deyfði hans sársöka og héllt hann því vel í það meðal og fljótt fór hann að drekka af sér vinina og vinnuna. Að lokum gaf annað nýrað sig og var hann lagður inn á spítala. Eftir að hann slapp þar út fór hann í meðferð og rifjaði þar upp kynni sín við Jésus.

Eftir að hann er kominn út úr meðferð fer hann að ferðast og syngja og segja sögur af Jésus.

Hann greinist með Krabbamein í hálsi og kemur svo seinna meir í ljós að hann er með heilaskemmdir og eitthvað var það meira en ég man það bara ekki. Læknar gáfu honum 2 mánuði í mesta lagi, og það var árið 2001. Nú er hann búinn að tilenka lífi sýnu því að ferðast um heimin og syngja og segja sögur af Jésus.

Ekkert að því, að sjálfsögðu er EKKERT af því. En þessi  maður sá mig og spurði mig hvort ég vildi ekki koma inn í rútu, NEI seigi ég og seigi honum að sé sé ekki kristinn, og þurfti endilega að bæta við að mér þætti sorglegt að hann skuli að vera troða sinni trú á aðra.

Frá kemur honum svar sem lét mig missa alla mína þolinmæði og ásteri.

Hann sagði „ofcourse, you are wearing that T-Shirt, every thing must make you sick“

Þegar ég heyrði þessa setningu frá honum þá vissi ég nákvæmlega allt sem vita þurfti um þennann mann, sem í raun út af fyrir sig er ekkert nema stimpill EN ég get sagt eftir á að ég veit flest sem hægt er að vita um þennan mann því ég talaði við hann og las æfisögu hans sem hann skrifaði sjálfur og álit mitt á þessum manni breytist ekkert, ég vann svar mitt í sögu hans afhverju hann er svona og hann sagði það sjálfur, hann þjáist af heilaskemmdum.

Þessi maður er dæmi um Fordómafullann mann því hann eins og svo margir aðrir trúaboðar og rósatrúar, þeir hafa öll svörinn, þeir vita hvað allt lífið snýst um, vilja þeir hlusta á aðra sem hafa aðrar skoðani? Kemur ekki til mála, þeir hafa bara rangt fyrir sér.

Þessi týpa af fólki fer mest í mig af ÖLLU. Hver og einn á rétt á sínum skoðunum og á ekki að þurfa gjalda fyrir að vera á öðru spani en einhver annar. Hvernig væri heimurinn þá?

Annas eru fordómar ekkert annað en skoðun sem nær yfir meira en hún á að gera, þú kannski hefur slæma reynslu af pólskum manni og þá teluru alla pólverja fífl og fávita (Tek fram að þetta er ekki óalgengt hér á Íslandi)

Stimplar eiga ekki að vera til.

Ef þú myndir sýna krökkum í 4-10 bekk og meira að segja meira upp mynd af Araba myndi yfirgnæjandi fjöldi hugsa strax „Hryðjuverkamaður“ 

Þetta er stimpill sem heil þjóð hefur fengið vegna glæðasamtaka af þeim uppruna, fólk gerir sér ekki grein fyrir að í Pakistan og fleiri köndum búa venjulegar fjöldskyldur og ekki allir múslimar kunna að búa til sprengju.

Þetta er hlutur sem ég kenna engu öðru en sjónvarpi og fjölmiðlum um, tek það líka frama ð 85% Sjónvarpsefnis hér á landi er bandaríst. En ég er ekkert að alhæfa neitt.

             

-| Ég tel að líf okkar sé ekki fyrirfram ákveðið, hef reyndar haldið því fram. Sagði einhvurtíman að við myndum fæðast full skrifuð bók, en þegar ég fór aðeins að pæla í því snérist hugur minn.

Í fyrsta lagi hefur mikið að segja um hvernig ég er í dag er hvernig ég var alin upp en þó eru til menn sem að engavegin tolla undir því sem foreldrar þeirra aldi þá upp til að vera.

En þegar þú fæðist er þér gefið það val um hvað þú ætlar að verða, meðan við erum ung erum við að reyna finna okkur, átta okkur á her við erum. En þessari spurningu verður ekkert svarað fyrr en á leiðarenda er komið.

Við höfum alltaf eitthvað val, við þurfum alltaf sjálf að velja og taka þeim afleiðingum sem fylgja því vali, það er ekkert fyrirfram ákveðið að ég sé að skrifa þetta núna, það var ekkert ákveðið að ég myndi vakna klukkan nákvæmlega 08:46, ég var búinn að ákveða vera aðeins fyrr í því en gat einfaldlega ekki fengið mig til að standa upp.

Ég las góða grein um ákvarðanir og afleiðingar og ætla ég að deila henni með þér/ykkur

ÁkvarðanirKenning: Allar ákvarðanir sem við tökum eru afleiðingar af einhverju sem gerðist í kring um okkur og í kringum um eitthvað í kring um okkur.

Rök: Stelpa sefur yfir sig því hún vakti fram eftir með vinkonum sínum, ástæða vökunni var því þær höfðu ekki hist í langan tíma því allar voru í vinnu (vegna þess þær vantaði pening) og skóla (vegna þess að nútímakröfur velta mest á menntun) og höfðu því lítinn tíma til að hittast,
Þessi stelpa átti að mæta í vinnuna snemma morguninn eftir og yfirmaðurinn hringdi í hana (vegna þess að hún var of sein í vinnuna) hún hleypur út og sér mann að blístra og láta glingra í lyklunum sínum (vegna þess að hann var einstaklega ánægður með þennan dag, vegna þess að hann kynntist stelpu og horfði á mjög áhugaverða heimildarmynd sem hafði mjög góðan undirhljóm)
þá fékk stelpan skyndilega vitrun og datt í hug að hún hafi gleymt lyklunum, svo reyndist vera. Hún var tæp á tíma því mamma hennar var líka að fara í vinnuna (aðeins á eftir henni samt því hún var í þeirri vinnu sem krafðist ekki að mæta eins snemma í vinnuna) þess vegna hljóp hún heim til að ná heim á meðan það var opið heima.

Allt eru þetta ákvarðanir sem hún tekur sem umhverfið í kring um hana "neyddi" hana til að taka.

Er ákvörðun þá ekki bara afleiðing af afleiðingum afleiðinga í umhverfinu sem allar spruttu upp frá því að fyrstu atómin sprungu úr mikla-hvelli.

Er eitthvað frábrugðið manneskju að ganga út í búð og stein að renna niður læk?
-Við gerum okkur grein fyrir því að við erum til og höldum að við höfum eitthvað vald á því sem við gerum, samt óhjákvæmilega förum við með strauminum
-Ég hef stundum reynt að fara ekki með straumnum - Ég ætla að fá mér vatnsglas, búinn að hella í glasið og geri mig tilbúinn til að væta varir mínar en helli vatninu svo í vaskinn í staðinn... svo geri ég mér grein fyrir því að ég var áður að hugsa um það að fara gegn straumnum og því afleiðing af því og þ.m. með straumnum.

Spurning: Haldið þið að þið hafið einhverja stjórn á einhverju sem þið gerið?

Við sjálf höfum fulla stjórn yfir hvað við gerum. Og um leið og við gerum eitthvað hefur það afleiðingar, sama á við um það sem gerum ekki, það hefur líka afleiðingar.

Við höfum alltaf val fyrir hendi þótt stundum það virðist ekki vera. Ég held ég þurfi ekki að leggja meiri tök fyrir máli mínu hvað þetta varðar.

-| Oft hefur birst í fréttum umræður um veggjakrot og þeim sóðaskap sem fylgir þessun „klíkum“ sem stunda þetta, Ég skil það að fólk vilji ekki hafa Reykjavíkur borg út krotaða en mér blöskraði þegar ég sá mynd sem fylgdi tiltektri grein, Það var mynd af 24-27 ára Karmlanni sem stóð með krosslagðar hendu í frekar fínum fötum og jakka, hann stóð fyrir framann vegg með svona spray-brúsa verki á og það stóð fyrir neðan myndina „Óbreyttur Borgari þreyttu á þessu kroti“

Þarna hafði fréttamaður bara farið í gagnasafn skrifstofu sinnar og fundið bara einhverja mynd því þetta var Listanemi í háskólanum að kynna lokaverkefnið sitt! Löglega...og var þetta „krot“ hans besta verk til þessa, ástæða þess að ég vissi þetta er að ég las fréttablaðið í sumar og var þessi grein um lokaverkefnið 2 vikum fyrir þessari. Til eru helling fleiri svona dæmi en ég meina fréttamenn eru líka mennskir þótt ótrúlegt sé.(þessi tiltekna setning er dæmi um fordóma)

 

-| Stæðsta Siðferðis of siðfræðis mál hjá mér er hvernig mín trú stangast við alla hina, við búum í kristilegu samfélagi og finnst mér hugsunarháttur marga þurfa að breytast en það er bara mín skoðun.

Viðheldur fáfræði kristninni?

Eg get spurt eins marga kristna trúa menn og ég vill hér í plássinu ég tel mig vissan á því að ávalt muni yfirgnæfandi meirihluti muni ekki geta sagst hafa virkilega lesið alla bilbliuna eða lifi eftir henni.

Svo ég spyr mig, erum við að halda í þessa trú af sið? Já, fermumst við til að fá gjafir og peninga? Já

Skýrum við börnin bara til þess að gera það? Já

Afhverju þurfum við að stafesta ást okkar með hjónabandi?

Ég fermdist og suma daga sé ég eftir því, mér er sama um allt draslið sem ég fékk og mér er þannig séð sama um peningin mér líður stundum hreinast sagt ílla yfir því að hafa játað trú mína þar sem hún var engin og núna í dag er hún alls ekki til staðar, því meira sem ég pæli í því, því lengra verð ég frá henni.

Ég veit um alveg rosalega marga sem eru skráðir í þjóðkirkjuna afþví bara, við þetta fólk segi ég „Afhverju ekki bara skra sig úr? Og lata því x% af skatt sem er tekinn af þér renna til Háskólans í stað þjóðkirkjunar?“

Ég verð líka stundum alveg hoppandi íllur yfir því að kirkjan sé ríkisrekinn! Stórar stofanir eiga að vera hlutlausar  af trú og þjóðerni. Við eigum ekki að kenna kristinfræði í skólum, við eigum að kenna trúabragðafræði því við erum ekki að gera neitt annað en að heilaþvo æskuna.

Það sem mun binda enda á þennan heim eru valdamiklir menn sem trúa!

Svo er allt brjálað í sumum fylkjum í bandaríkjonum því það er verið að kenna þróunarkenninguna?!

Ég eiginlega bara veit ekki hvað ég get sagt við þessu, Mér finnst þetta bara gjörsamlega fáránlegt.

  

-| Að vera óhlutdrægur í nútíma samfélgi er erfitt, öll höfum við okkar skoðanir burt séð frá því hvort við vitum í raun eitthvað um það málefni sem skoðunin snýst...

Það má í raun alveg halda því fram að allt hér að ofan teljast með sem þættir sem teknir eru inn með í okkar skoðunum.

Það er mest talað um kennara, hellst þá kennara sem kenna 1-7 bekk, það er í raun ekki nokkur leið til að vera hlutlaus í neinu.

Að vera óhlutdrægur er t.d að geta fjallað um ákveðið málefni án þess að setja eigin skoðanir fram fyrir.

Eins og talað er um í kennsluhefti að rasismi á Íslandi sé algengur og að Íslendingar eigi þetta land og menningu og engin annar, það er í raun satt, við eigum þetta land og við stjórnum menningu þess.

Hvað fordóma varðar held ég að þeir séu meira yfirborðskendir en eitthvað annað, við bjóðum fyrsta flokks þjónust til fólks sem kemur hingað til að vinna, við bjóðum ódýrari húsnæði og nóg af vinnu og er það fyrir ofan mörg lönd!

Að sjálfsögðu verða alltaf einhverjir á móti erlendu vinnuafli eða fólki af öðrum uppruna en það er ekkert meira um það hér á Íslandi en annastaðar, að minnsta kosti er okkar ríkistjórn lítið í rasismanum.

Og fyrir þá sem segja það að Frjálslyndir (xF) séu  rasistar þá er það gott dæmi um fáfræði, þetta segja einungis þeir sem hafa ekki gefið sér tíma í að lesa stefnu flokksins.

„Íslensk stjórnvöld hafa skyldum að gegna gagnvart þeim útlendingum sem hér lifa og starfa og við viljum stuðla að velferð allra þeirra sem hingað koma. Það er illmögulegt ef engin stjórn er á þeim fjölda sem kemur til landsins á skömmum tíma.“

Frjálslyndir sækjast eftir auknri skyldumenntun fyrir fólk sem kemur hér til að vinna og en auknari kennslu fyrir þá sem ætla sér að setjast hér að, en þeir gera sér samt líka grein fyrir því, og allt of fáir þingflokkar gera það, að við þurfum einhverja stjórn á því flæði inn í landið af fólki.

Núna samt er ég kominn út í bullandi hlutdrægni og finnst mér það ekkert gera nema sanna mál mitt

Hlutlaus kennari er ekki til. Hlutlaust fólk er ekki til.

22. október 2007 klukkan 09:09
Ottó Marwin
Almennt
18 athugasemdir
15október

Shjet

Já maður er orðinn frekar slappur í þessu, málið er einfaldlega vegna þess að ég hef kannski frá mikklu að segja en ég nota ekki blogg til að tala um mitt daglega líf, eða jú hef reyndar gert það en ætla algjörlega að hætta því.
Sem skilur þessa síðu eftir sem frekar inactive. EN ég hætti ekki með hana, bara skoðið þetta svona einu sinni á mánui, kannski er ný könnun.
Ef þið eruð heppin þá er blogg....um eitthvað sem engin ykkar hefur áhuga á en lesið samt og kannski myndið ykkur skoðun á því sem ég skrifa og þá kvet ég ykkur til að segja ykkar skoðun.
Held 31 kaflarnir nái ekki lengra, heldur ekki samtektin af fyrstu 3 köflonum sem voru búnir að renna saman í 1. því ég einfaldlega hef ekki tíma fyrir skrift af þeim lengur og einfaldlega vegna þess að ég er fastur...hef ekkert meira að segja um það...eða ju helling en ekkert meira að skrifa.
Meira er það ekki í bili....
15. október 2007 klukkan 01:50
Ottó Marwin
Almennt
Engin athugasemd
09september

voodoo

Ætti að vera læra en ég get það alls ekki, þar sem það er ekki mennskt að skrifa meira en 237 orð um steinflugur, og það er farið fram á 1000.
Ég fór að velta fyrir mér einu...hlutirnir eru endalaust að breytast...stundum fyrir það betra, stundum verra, stundum stórt og stundum lítið.
Stundum smátt og smátt og stundum allt í einu.
Ástæðan fyrir því að ég byrjaði að hugsa um þetta er að ég var að fatta að besti vinur minn er ekki hérna lengur, besta vinkona min ekki heldur....og það fattaði ég í raun smátt og smátt en eg gerði mér aldrei grein fyrir hversu mikklu þetta myndi breyta..oki ég á fullt af vinum hérna og það góðum og er langt frá því að vera eitthvað einmanna eða leiður yfir því að þau 2 séu farin ásamt fleirum sem maður hefur séð daglega í 10 ár. Þá tekur maður eftir eftir þessu á einhverjum tímapunkti.
Og svo er það, alltaf þegar einhver flytur eða fer annað og upplyfir eitthvað í x langan tíma kemur sú manneskja til með að gera það sem mönnum er eðlilegt að gera.....aðlagast sýnu nýja umhverfi og gleyma fornum siðum, sem akkurat ég er hræddur um að hinn lausláti vinur minn komi til með að gera, hann valdi versta staðinn til að fara á því ég tel hann enn ómótaðan skólptur...hann er fljótur að grípa mót og fyllir sig út í það, aftur og aftur breytist þessi drengur og nu er hann komin í hnakkabælið, guð minn góður eg vona að sá Hilmar sem ég þekki sleppi lifandi frá þessum stað, en bið bæði hann og alla aðra að taka þessu nu ekki bókstaflega þar sem eg er nu ekki alveg svona dramatrískur á þetta í raun en þetta er fínnt lesefni

útlit þessara síðu mun breytast nu á næstuni og mun aðeins nýlegri mynd af mér fara í banner, en ég leyfi myrkrinu og svarta litnum en að njóta sín hérna því það kemur ekkert annað til greina, ég skal eyða mínum tíma og ykkar í að segja afhverju ég vill hafa flest svart..
svartur er hlutlausasti liturinn, hann getur táknað hamingju eða sorg, mikið eða lítið, þegar maður er ógeðslega þreyttur getur maður horft á hann annað en gulan og hvítan eða bleikann.
Svart er málið og þið vitið það.

Það er paintball mót hérná á höfn einhvurtíman á næstu mánuðum og auglýsi ég hér með eftir áhugasömum hermönnum í liðið mitt og BR :)

Það sem skólan varðar þá er hann kominn í fullan gang og er eg alveg sáttur með hlutina en lýg eigi, mig langar í burt, nánast sama hvert bara að prófa eitthvað nýtt í einhvern tíma, en held ég útskrifist héðann.
Ég stefni enþá á það að útskrifast á FÉ braut og fara svo í háksólann i heimsspeki, og eftir það langar mig að læra stjórnmálafræði en vá hvað ég veit ekkert hvað mig langar til að verða.
Ahh vá ég er búinn að vera svo lengi með þetta littla blogg að ég ætla að hætta núna, vá hvað ég er orðinn lélegur í þessu

09. september 2007 klukkan 21:05
Ottó Marwin
Almennt, Sögur
10 athugasemdir
28ágúst

BLOGGUR!

jæja skólinn byrjaður og netið komið upp og ég sit hér í ensku með ekkert að gera þar sem eg sæki báða tíma á dag sem enk 103 býður uppá, why? ég hef ekkert betra að gera.
Já, rest er eins og er í prófi sem ég lauk í morgun og rakst ég inná síðuna mína aftur og ákvað rétt í þessu að skella upp einu tilgangslausu bloggi.
Ég er byrjaður að taka hljómsveitaraðstöðuna "mína" í gegn og stend ég í því að skrapa 37 mánlingar lög af veggnum til að geta spaslað í sprungur og gert þetta þokkanlegt á ný, gengur hægar en ég vonaðist til því þetta er fokking leiðinlegt og erfitt því ég held svei mér þá að  ég sé fyrstur til að gera þetta síðan þetta herbergi varð til.....

veturinn en gengin í garð og fylgir honum kuldi og myrkur, my time to shine eins og ég kalla hann...ég mun eflaust henda upp 3-4 dimmum og þungum bloggum til að fylla lesendur af leiðindum og kvörtunum út í allskonar hluti, en þetta blogg mun aðalega bara pirra ykkur því þegar þið lesið þetta uppgvötið þið það að þið hafið eytt 2 minotum af lífi ykkar sem þið fáið aldrei aftur....
Marwin þakkar fyri sig
28. ágúst 2007 klukkan 14:40
Ottó Marwin
Almennt, Sögur, Tónlist
13 athugasemdir
23júlí

Efasemdir..

Ég var og er reyndar staddur í vinnuni, staðan en sem komið er er frekar róleg, allvega þá hef ég bara setið hér við afgreiðslukassann og látið hugan reika svona inn og út upp og niður um nokkur mál sem eru mér ofarlega í huga þessa daga, svo punktaði ég einnig niður nokkur stk þunglyndum setningum niður á blað og samndi nokkra hálfkláraða texta eða ljóð, svo kom eitt orð upp sem lét mig stoppa aðeins og hugsa út í annað, orðið var "HEADCASE" og ég rifjaði upp 31 þar sem ég talaði um að allar tilfinningar ættu sér uppruna í hausnum(heilanum) en væru ekki myndaðar af líkamanum eða "sálini" ástæðan fyrir að þetta orð var til þess að ég fór að hugsa um þetta var vegna þess að í smá tíma var ég að spá hvort ég ætti að efast þetta því sko....seinustu daga hef ég verið eithvað "down" ég er búinn að vera í svona frekar slöppu skapi og buinn að vera smá leiður og niðurlútur og já sem sagt bara lioðið hálf ílla, leið og þetta orð kemur upp kviknar eitthvað ljós í dimmu helming heilans og fer allt af stað, allur þessi vanlíðann, samkvæmt minni eigin trú amk, er í hausnum á mér... :/ þessu á ég sjálfur að hafa 100% stjórn yfir. Á en ekki kann ég að beyta því....örugglega einhverjir sem kunna það en eg bara veit ekki hvernig maður á að fara að því en ég er að leita af einhverum bókum sem fjalla um þetta, hingað til hefur engin verið til hérlendis.
En eitt veit ég, ég er miklu betri í því að vera bara down, miklu betri í því heldur en að halda mér glöðum.....er það útaf því það er léttara eða er það utaf því ég vill það?
Hins vegar er ekkert mál að láta sér líða vel að utan...það er ekkert hókus pókus dæmi, meina öll klæðum við okkur í dulargervi hamingjunar áður en við höldum út í kaldan veruleikann, þetta hef ég oft kalla grímuna eða "everyday mask" og ætla ég að blogga um hana sérstaklega þegar ég nenni. En allvega eftir þessar vangavelltur sé ég enga ástæðu til að efast um kafla 2 í 31, sem er í endurskrifun, sá sem er postaður hér á þessari síðu er í raun MJÖG hrá útferð á honum....hann er en í endurskrifun ásamt kafla eitt og kafli 3 og 4 koma inn á sama tíma og þeir koma endurbættir hérna inn einhvurtíman í lok sumars.

Held að meira sé það ekki í bili amk, vina að ég sé ekki að skrifa af mér algjört rugl sem allir munu svo skíta yfir, eða þar að segja ef einhver les þetta....
minni samt á myspace-ið mitt - http//www.myspace.com/marwinsspace takk fyrir
23. júlí 2007 klukkan 12:16
Ottó Marwin
Almennt, 31,606961258558216545204213985699
9 athugasemdir
21júlí

hmm

spurning að taka pásu á þssari síðu bara og blogga það littla sem ég blogga á þessu blessaða myspace? spurning...sé til
21. júlí 2007 klukkan 20:18
Ottó Marwin
Almennt
Engin athugasemd
19júlí

Myspace-iđ komiđ upp

jubb þá hef eg lokst látið undan, margir búnir að segja mér að drullast til að gera myspace....en það var hún Þórun Jakobína sem kom mér alla leið og i guess ...thx or somthing... :/

allvega þá er "urlið" www.myspace.com/marwinsspace

Mun ég samt halda þessari síðu sem main blogg, en þegar ég kem með svona "stór" blogg þá munu þau einnig póstast þar..skiljú?

allvega www.myspace.com/marwinsspace -´tjekkið og "addið" ?

takk fyrir ég ætla halda áfram að liggja andvaka og stara á hurðina mína
19. júlí 2007 klukkan 02:10
Ottó Marwin
Almennt
Engin athugasemd
15júlí

Eistnaflug...

Hæha þá er maður kominn heim af Eistnaflugi 2007 og fuck hvað það var mikil snild, ok ég er ekki með programmið sem þetta endaði með en ég ætla bara þá minnast á þau bönd sem ég hef eithvað um að segja, annas sá ég flest öll og var ég að fýla alla þarna......bara aðra meira en hina

Ég ætla að byrja á þeim sem mér fansnt bara allt í lagi.
Momentum: ég fýla old momentum betur, mer fannst nýja stöffið allt of mikil kássa og ekki almennilega hægt að detta inn í það en ég meina....eg var að heyra þetta í fyrsta skipti, ætla kaupa diskinn þegar hann kemur út og sé svo til...meina ekkert að marka lög ef maður hefur heyrt þau 1x live...
p.s skemmti mér að sjálfsögðu samt meðan þeir voru....
Andrúm: again, old andrúm betra, en oki þetta er enþá sami fílingurinn en þetta var svo lang dreigið...spiluðu alveg korteri yfir tíma og veit ég að margir voru ornir frekar þreittir en samt voðalega flott tónlist en innan um þennann hóp var maður ekki alveg í andruminu fyrir Andrúm (i know.... :(     )
Skítur: Not a fan...en ég fýlaði að sjá þá live =) söngvarinn alveg mjög skemmtilegur á að horfa en annas er þetta bara plain shit metall sem eg fýla ekkert rosalega

Svo varu það bönd á borð við Changer, SC, Gordon Riots sem voru 100% shit hvað ég kláraði mig á changer, hafði ekkert eftir fyrir SC en hlustiaði á þá frá sofanum og fýlaði þá í botn, svo er ég að fýla hvað SC voru rosalega nálganleigir menn annað en Sólstafir, sem ég fýlaði í botn á sviði en comon...óþarfi að vera of cool til að kíkja á tjaldsvæðið eða hlusta á hin böndin...en annas voru sólstafir geðveikir.

Kaun er band sem ég byrjaði að heyra í þegar eg var við sölubásana....byrjaði þessi geðveii trommu taktur með ógeðslega þéttu double kick, ég sá fyrir mér hörkutrommara með tribbler....hleyp inn í sal.....allt í reyk og ekkerst sást.....kicker kaflin klárast og fer takturinn út í experimental thingee og revers diska sound og þá missti ég saur.......reykurinn fór og engin trommari eins og ég var búinn að heyra, og bassaleikarinn í sólstöfum að syngja og berja bassann ásamt gíarleikara Helshere og einhvejrum einum öðrum...oki örugglega allt í lagi band en ekki eithvað sem ég var að fýla...

Hljómsveitinn sem kom mér mest á óvart var Diabolus, holy fokkkkkkkking shit hvað þeir voru góðir, bestir? njah jah....amk rosalega þétt og geðveikt band sem ég hlakka til að fá disk með....

Innvoltis og Morðingjarnir eru ekki minn tebolli
og rest man eg ekki í augnablikinu...en allvega voru þetta klikkuð helgi og allir verða að verða sér út um Eistnaflug 07 dvd þegar það kemur út því að það sem gerðist þarna getur ekki verið almennilega sagt frá í bloggi =)

15. júlí 2007 klukkan 21:41
Ottó Marwin
Almennt, Sögur, Tónlist
2 athugasemdir
08júlí

Shogun, Gordon Riots og We Made God

Rosalega skemmtilegir tónleikar í gær, rosalega slöpp mæting og rosalega svona......lélega undirbúið þar sem bandið kom klukkutíma og tíu mínotum eftir að þeir áttu að vera byrjaðir og stilltu upp, hehe smá vesen í að komast alla leið þar sem allt sem gat klikkað klikkaði.
1st. Brotnaði krókurinn af kerruni sem var með öllu draslinu...shii og eithvað pínu skemmdist eithvað en þeir redduði því á svona 2 tímum, löguðu krókinn og héldu áfram....
2nd. BOOM, hvellspringur dekk hjá þeim og þeir eru auðvitað á huge jeppa með 38" dekk, why? því 38" dekk eru ekki auðfundin....þvert á móti ég heyrði að þessi stærð er bara i 1 tegund dekkjaverkstæða sem eru á 3 stöðum á landinu, veit samt ekkert hvort það sé endilega satt...en já að sjálfsögðu voru þeir ekki með vara dekk en  leigðu sé  eitt stk, veit ekki hvaðan
3rd. 27 tíma ferðalag.......loks á enda, klukkan orðin 10min yfir níu og nuna farið að stilla upp..

Þeir stilltu upp á rosalega stuttum tíma og gékk allt bara drullu vel, soundið var bara mjög fínnt en hefði að sjálfsögðu getað verið MIKLU betra en shit ég var sáttur.
Eins og ég sagði hérna fyrir ofan þá var mætingin ekki góð en eg hef aldrei upplifað svona stemningu á höfn á metal ónleikum áður, allir iní bandinu og ekki endilega drepa hvern annan með að kíla og henda....bara slamma.....n´jota þess að hlusta á 3 geðveik metal bönd, reyndar dúndraði Arnór gítarnum sínum í Hjalla í GR en who cares þer eru ekkert hornfirðingar og það var líka bara slys.....þeir verða bara æfa sporinn aðeins betur =)
En ég þakka þessu gaurum fyrir komuna og ég vona eftir meiri aðsókn af þeim næst því annas fara þeir nú að þreytast á að fara á hausinn við að koma á hornafjörð að spila fyiri þennan sama 10 manna hóp, but thx anyways guys.

Eftir tónleikana var haldið út á tjaldsvæði.....það var serstakt og eiginlega nenni eg ekkert að blogga um það því....eg blogga ekki um "djömm"
En eftir tónleikanna áður en allir fóru út spurði ég Kára í GR hvort ég mætti testa bassan hans en hann á MusicMan bassa sem er næstum því sama týpa og mig langar ógeðslega í nema þessi bassi var eldri,...eiginlega orðin antík en shit hvað það var geðveikt að spila á hann....svo kom Heimir og spurði hvort ég vildi nu ekki sjá almennilegan bassa, bennti mér á töskuna hans stúna í WMG og viti menn....rosalegur fender jazz bass.....afhverju man eg ekki týpuna...oh well, ég tók hann nú ekki upp þar sem ég var ekki með leyfi frá stúna sjálfum og veit ég amk að ÉG hata þegar gaurar sem ég þekki kannski ekkert taka bassan minn (Aron og Júlli ef þið lesið þetta...þetta á eki við ykkur)
En ég þakka aftur fyrir mig, þessir tónleikar og bara þetta kvöld var rosalega gott og við sjáumst ALLIR  aftur næstu helgi...nema Maggi WMG, hann er blankur :)

08. júlí 2007 klukkan 17:45
Ottó Marwin
Almennt, Tónlist
5 athugasemdir
26júní

Lífiđ er ţessa daganna mér sem lélegt lag...

Svona undanfarna virka daga eru human contact hjá mér í algjöru lámarki en um helgar hef ég verið skemmtilega heppinn að rekast á fólk, tek sem dæmi þessa helgi er ég ætlaði að vera bara að skella mér eitthvert út í ósland eða í hina áttina og setjast, hlusta á ipod og skrifa ljóð þá rakst ég á svona 20 krakka....damit..
Héllt mér með fólki alveg til 7 um morgunin eða eithvað álíka og fór þetta kvöld ekki alveg eins og planað var í upphafi þess.
En já eins og ég var að væla um þá er eins og líf mitt sé leiðinlegt lag á reapeat, alltaf bara eitthvað skemmtileg AÐ FARA gerast en gerist aldrei, juju humarinn er næstu helgi...jibbí, hvað svo? ju oki það er eistnaflug 13 júl...oki lífið er ekki svo slæmt, en ég er búinn að vera farast úr leiðindum seinustu daga....kannski spilar smá inní að næstum sá eini sem þolir mig daglega er fluttur héðann...já kannski er hefur það eithvað að segja...en þá á þetta eftir að skána því allt nýtt venst.
Kannski er það sú staðreynd að ég synjaði umsókn minni til fsu þegar ég var kominn inn....já kannski er það líka einhver partur í því, kannski er það sú staðreynd að ég hef bara verið að einblýna á að allt sé ömurlegt hérna og eina leiðinn til að lýsa upp hlutina er að fara á selfoss...sem er rangt en já þannig er það. svo að það getur spilað inní já...kannski er það að ég er sá eini úr Hydra sem vill eiga þetta efni okkar og nenni að henda´tíma í að taka lögin okkar upp og SUMIR eru að gera það erfitt að við náum þessu......já það er það! got it...
En hvað með það, ekkert sem ég get gert í því.

Ég var spurður nú á dögonum, afhverju á ég(spurjandinn) að halda áfram að lifa?
svarið er......fyrir alla í kringum þig, opnið augun....þið eruð ekkert að lifa fyrir ykkur sjálf heldur ykkar vini og kunningja, endi einn sitt líf verða þeir nánustu fyrir miklum missi og hækkaru líkurnar á að þau bindi enda á sitt líka og sú keðja getur haldið lengi áfram, þannig sjálfsvíg verður aldrei svar nema það sé til að svinda á tryggingum.

En afhverju að hafa þetta eithvað lenga? jú til að segja ykkur frá því að ég er fastur á bls 4 eða svo í "31" og kemur örugglega inn spurningalisti um þa sem ég er búinn að skrifa og svara af minni bestu getu og mun ég örugglega óska eftir spurningum í comment um hluti sem svör eiga ekki að finnast svör við....en það verður ekki fyrr en eftir helgi einhvurtímann...en allvega þá er ég hættur í bili....ekki bögga stafsetningu ég er alveg að fara fá mér svona "púka" og þá mun þetta ógeð ekki sjást lengur, takk fyrir..
26. júní 2007 klukkan 17:42
Ottó Marwin
Almennt, Sögur, Tónlist, 31,606961258558216545204213985699
3 athugasemdir

Ađalvalmynd

Könnun

Hversu stórt ćtti mađur ađ fara (eyrun, núna í 5mm)

Auglýsing

Klukkan

Prófíll

  • Nafn: Ottó Marwin
  • Stađur: Höfn
  • Atvinna: Nemi
  • Hjúskaparstađa: 2-0
  • Um mig: Í breyingu, kemur inn nćstu daga
  • Annađ: ...just living to see the day...

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Undirsíđukubbur

Innskráningar kubbur