Ætti að vera læra en ég get það alls ekki, þar sem það er ekki mennskt að skrifa meira en 237 orð um steinflugur, og það er farið fram á 1000. Ég fór að velta fyrir mér einu...hlutirnir eru endalaust að breytast...stundum fyrir það betra, stundum verra, stundum stórt og stundum lítið. Stundum smátt og smátt og stundum allt í einu. Ástæðan fyrir því að ég byrjaði að hugsa um þetta er að ég var að fatta að besti vinur minn er ekki hérna lengur, besta vinkona min ekki heldur....og það fattaði ég í raun smátt og smátt en eg gerði mér aldrei grein fyrir hversu mikklu þetta myndi breyta..oki ég á fullt af vinum hérna og það góðum og er langt frá því að vera eitthvað einmanna eða leiður yfir því að þau 2 séu farin ásamt fleirum sem maður hefur séð daglega í 10 ár. Þá tekur maður eftir eftir þessu á einhverjum tímapunkti. Og svo er það, alltaf þegar einhver flytur eða fer annað og upplyfir eitthvað í x langan tíma kemur sú manneskja til með að gera það sem mönnum er eðlilegt að gera.....aðlagast sýnu nýja umhverfi og gleyma fornum siðum, sem akkurat ég er hræddur um að hinn lausláti vinur minn komi til með að gera, hann valdi versta staðinn til að fara á því ég tel hann enn ómótaðan skólptur...hann er fljótur að grípa mót og fyllir sig út í það, aftur og aftur breytist þessi drengur og nu er hann komin í hnakkabælið, guð minn góður eg vona að sá Hilmar sem ég þekki sleppi lifandi frá þessum stað, en bið bæði hann og alla aðra að taka þessu nu ekki bókstaflega þar sem eg er nu ekki alveg svona dramatrískur á þetta í raun en þetta er fínnt lesefni
útlit þessara síðu mun breytast nu á næstuni og mun aðeins nýlegri mynd af mér fara í banner, en ég leyfi myrkrinu og svarta litnum en að njóta sín hérna því það kemur ekkert annað til greina, ég skal eyða mínum tíma og ykkar í að segja afhverju ég vill hafa flest svart.. svartur er hlutlausasti liturinn, hann getur táknað hamingju eða sorg, mikið eða lítið, þegar maður er ógeðslega þreyttur getur maður horft á hann annað en gulan og hvítan eða bleikann. Svart er málið og þið vitið það.
Það er paintball mót hérná á höfn einhvurtíman á næstu mánuðum og auglýsi ég hér með eftir áhugasömum hermönnum í liðið mitt og BR :)
Það sem skólan varðar þá er hann kominn í fullan gang og er eg alveg sáttur með hlutina en lýg eigi, mig langar í burt, nánast sama hvert bara að prófa eitthvað nýtt í einhvern tíma, en held ég útskrifist héðann. Ég stefni enþá á það að útskrifast á FÉ braut og fara svo í háksólann i heimsspeki, og eftir það langar mig að læra stjórnmálafræði en vá hvað ég veit ekkert hvað mig langar til að verða. Ahh vá ég er búinn að vera svo lengi með þetta littla blogg að ég ætla að hætta núna, vá hvað ég er orðinn lélegur í þessu
jæja skólinn byrjaður og netið komið upp og ég sit hér í ensku með ekkert að gera þar sem eg sæki báða tíma á dag sem enk 103 býður uppá, why? ég hef ekkert betra að gera. Já, rest er eins og er í prófi sem ég lauk í morgun og rakst ég inná síðuna mína aftur og ákvað rétt í þessu að skella upp einu tilgangslausu bloggi. Ég er byrjaður að taka hljómsveitaraðstöðuna "mína" í gegn og stend ég í því að skrapa 37 mánlingar lög af veggnum til að geta spaslað í sprungur og gert þetta þokkanlegt á ný, gengur hægar en ég vonaðist til því þetta er fokking leiðinlegt og erfitt því ég held svei mér þá að ég sé fyrstur til að gera þetta síðan þetta herbergi varð til.....
veturinn en gengin í garð og fylgir honum kuldi og myrkur, my time to shine eins og ég kalla hann...ég mun eflaust henda upp 3-4 dimmum og þungum bloggum til að fylla lesendur af leiðindum og kvörtunum út í allskonar hluti, en þetta blogg mun aðalega bara pirra ykkur því þegar þið lesið þetta uppgvötið þið það að þið hafið eytt 2 minotum af lífi ykkar sem þið fáið aldrei aftur.... Marwin þakkar fyri sig
Hæha þá er maður kominn heim af Eistnaflugi 2007 og fuck hvað það var mikil snild, ok ég er ekki með programmið sem þetta endaði með en ég ætla bara þá minnast á þau bönd sem ég hef eithvað um að segja, annas sá ég flest öll og var ég að fýla alla þarna......bara aðra meira en hina
Ég ætla að byrja á þeim sem mér fansnt bara allt í lagi. Momentum: ég fýla old momentum betur, mer fannst nýja stöffið allt of mikil kássa og ekki almennilega hægt að detta inn í það en ég meina....eg var að heyra þetta í fyrsta skipti, ætla kaupa diskinn þegar hann kemur út og sé svo til...meina ekkert að marka lög ef maður hefur heyrt þau 1x live... p.s skemmti mér að sjálfsögðu samt meðan þeir voru.... Andrúm: again, old andrúm betra, en oki þetta er enþá sami fílingurinn en þetta var svo lang dreigið...spiluðu alveg korteri yfir tíma og veit ég að margir voru ornir frekar þreittir en samt voðalega flott tónlist en innan um þennann hóp var maður ekki alveg í andruminu fyrir Andrúm (i know.... :( ) Skítur: Not a fan...en ég fýlaði að sjá þá live =) söngvarinn alveg mjög skemmtilegur á að horfa en annas er þetta bara plain shit metall sem eg fýla ekkert rosalega
Svo varu það bönd á borð við Changer, SC, Gordon Riots sem voru 100% shit hvað ég kláraði mig á changer, hafði ekkert eftir fyrir SC en hlustiaði á þá frá sofanum og fýlaði þá í botn, svo er ég að fýla hvað SC voru rosalega nálganleigir menn annað en Sólstafir, sem ég fýlaði í botn á sviði en comon...óþarfi að vera of cool til að kíkja á tjaldsvæðið eða hlusta á hin böndin...en annas voru sólstafir geðveikir.
Kaun er band sem ég byrjaði að heyra í þegar eg var við sölubásana....byrjaði þessi geðveii trommu taktur með ógeðslega þéttu double kick, ég sá fyrir mér hörkutrommara með tribbler....hleyp inn í sal.....allt í reyk og ekkerst sást.....kicker kaflin klárast og fer takturinn út í experimental thingee og revers diska sound og þá missti ég saur.......reykurinn fór og engin trommari eins og ég var búinn að heyra, og bassaleikarinn í sólstöfum að syngja og berja bassann ásamt gíarleikara Helshere og einhvejrum einum öðrum...oki örugglega allt í lagi band en ekki eithvað sem ég var að fýla...
Hljómsveitinn sem kom mér mest á óvart var Diabolus, holy fokkkkkkkking shit hvað þeir voru góðir, bestir? njah jah....amk rosalega þétt og geðveikt band sem ég hlakka til að fá disk með....
Innvoltis og Morðingjarnir eru ekki minn tebolli og rest man eg ekki í augnablikinu...en allvega voru þetta klikkuð helgi og allir verða að verða sér út um Eistnaflug 07 dvd þegar það kemur út því að það sem gerðist þarna getur ekki verið almennilega sagt frá í bloggi =)
Svona undanfarna virka daga eru human contact hjá mér í algjöru lámarki en um helgar hef ég verið skemmtilega heppinn að rekast á fólk, tek sem dæmi þessa helgi er ég ætlaði að vera bara að skella mér eitthvert út í ósland eða í hina áttina og setjast, hlusta á ipod og skrifa ljóð þá rakst ég á svona 20 krakka....damit.. Héllt mér með fólki alveg til 7 um morgunin eða eithvað álíka og fór þetta kvöld ekki alveg eins og planað var í upphafi þess. En já eins og ég var að væla um þá er eins og líf mitt sé leiðinlegt lag á reapeat, alltaf bara eitthvað skemmtileg AÐ FARA gerast en gerist aldrei, juju humarinn er næstu helgi...jibbí, hvað svo? ju oki það er eistnaflug 13 júl...oki lífið er ekki svo slæmt, en ég er búinn að vera farast úr leiðindum seinustu daga....kannski spilar smá inní að næstum sá eini sem þolir mig daglega er fluttur héðann...já kannski er hefur það eithvað að segja...en þá á þetta eftir að skána því allt nýtt venst. Kannski er það sú staðreynd að ég synjaði umsókn minni til fsu þegar ég var kominn inn....já kannski er það líka einhver partur í því, kannski er það sú staðreynd að ég hef bara verið að einblýna á að allt sé ömurlegt hérna og eina leiðinn til að lýsa upp hlutina er að fara á selfoss...sem er rangt en já þannig er það. svo að það getur spilað inní já...kannski er það að ég er sá eini úr Hydra sem vill eiga þetta efni okkar og nenni að henda´tíma í að taka lögin okkar upp og SUMIR eru að gera það erfitt að við náum þessu......já það er það! got it... En hvað með það, ekkert sem ég get gert í því.
Ég var spurður nú á dögonum, afhverju á ég(spurjandinn) að halda áfram að lifa? svarið er......fyrir alla í kringum þig, opnið augun....þið eruð ekkert að lifa fyrir ykkur sjálf heldur ykkar vini og kunningja, endi einn sitt líf verða þeir nánustu fyrir miklum missi og hækkaru líkurnar á að þau bindi enda á sitt líka og sú keðja getur haldið lengi áfram, þannig sjálfsvíg verður aldrei svar nema það sé til að svinda á tryggingum.
En afhverju að hafa þetta eithvað lenga? jú til að segja ykkur frá því að ég er fastur á bls 4 eða svo í "31" og kemur örugglega inn spurningalisti um þa sem ég er búinn að skrifa og svara af minni bestu getu og mun ég örugglega óska eftir spurningum í comment um hluti sem svör eiga ekki að finnast svör við....en það verður ekki fyrr en eftir helgi einhvurtímann...en allvega þá er ég hættur í bili....ekki bögga stafsetningu ég er alveg að fara fá mér svona "púka" og þá mun þetta ógeð ekki sjást lengur, takk fyrir..
Ég ákvað að skreyta síðuna aðeins og gera banner eða "haus" eins og þetta heytir á okkar ágæta tungumáli. Þegar ég var að vesenast að setja hausinn inn og laga kubbana og stilla nýja útlitið fattaði ég það að ég blogga að meðaltali 2x á mánuði, ég tel ekki ekki mjög gott miða við það að ég finnst ég vera í fullri vinnu við að vesenast í þessari síðu....þetta ætla ég mér að reyna bæta í sumar og stefni á amk 1 sinni viku.
Allir vita af óhappinu hjá Ragnari, Ósk og Bryndísi og hvað leiddi af því, ég vona bara að þetta fari allt á besta veg og þau nái sér öll andlega og líkamlega og meira vill ég ekki blogga um þennan atburð þar sem mér finnst það ekki vera minn staður. (Láttu þér batna Bryndís)
Óljóst er hvort ég verði með vinnu í sumar og það er rosalega slæmt þar sem ég stefni á að flytja til selfossar og vantar því allann þann pening sem ég get fengið. Bestfiskur er búinn í humar í þessum mánuði og mun starfsfólki vera sagt upp að meiri hluta, ég held að það sé en smuga fyrir mig að fá að vera áfram og ætla rétt að vina það þar sem ég fæ hvergi annastaðar vinnu því allir eru búnir að ráða :S
En ég tek það fram að skrift á kafla 3 í 31,606961258558216545204213985699 er í fullum gangi og gengur allt vel með það en edid á kafla 2 er svolítið erfitt og ég er ekki byrjaður á endurskrifun á kafla 1 en það verður að gerast því hann er alveg einstakega ílla settur upp.
Hydra taka vonandi upp í sumar þessi 3 lög sem við eigum og meira að segja er ég innst inni að vona að ná að bæta við amk 1 lagi sem er komin hugmynd af og ég vona að Hilmar komi með aðra á móti þá getum við náð 5 lögum inná þetta. Stefnan er að taka upp hjá Galdri (Heiðari) en hann tók vel í þessa hugmynd að mér fanns amk, Við munum gera nokkra diska með coveri og öllu svona til að þurfa ekki að kaupa afmælisgjafir en þetta mun koma á tilkomandi myspace síðu bandsins og einnig allt á rokk.is þannig það verður ekkert mál að nálgast þessi lög (ég mun einnig "seeda" þessum disk á torrent) og munið það ef þið eruð eithvað down yfir því að þetta band sé hætt að kenna siffa um :D nei grín, elska þig Siffi minn (k) og Lejlu líka :P
Prófin eru byrjuð í skólanum (vor) og var íslenskan eins og að drekka vatn (fanns mér amk, vona að ég fái gott út úr henni) og á morgun tek ég stærfræði sem ég er rosalega kvíðin fyrir eins og öllu sem tengist stærfræði. Ég fæ að sleppa ensku þannig ég get farið beinnt að læra undir Dönsku og nát, en ef einhver veit í hvaða röð prófin eru eftir morgundaginn má hin sami setja það í comment takk takk
Meira ætla ég ekki að bulla að sinni en stenfi á blogg fyrir helgi.. ef ég mun hafa eithvað að segja that is... Sæl að sinni Marwin Gunnarsson
Ég verð að setja eithvað hingað inn svo að ég hafi einthverjar lesendur, sko ég er ekki búinn að sjá nóg að viðbrögðum fyrir bloggið hér að neðan þannig þið sem lesið þetta og eigi eftir að elsa þetta hér fyrir neðan....lesið það! takk takk
31,606961258558216545204213985699 Kafli3 er byrjaður í skrifun, kafli 2 er en í edid og set ég 3 fyrst inn örugglega og svo nr 2 útaf þeim breytingum sem á honum verða, skoðun mín hefur samt lítið sem ekkert breyst á því. Kafli 3 verður um það sem gerist eftir dauðann(samvæmt þá mér (31) ) og held ég að hann verðir örugglega lengstur til þessa, Kafli 1 er líka í edid þar sem ég var ekki byrjaður með þetta kafladæmi þegar ég skrifaði hann og mun hann lengjast talsvert.
Meira hef ég nú ekki að segja um neitt að sinni, ég kanskki skelli einu bloggi upp á morgun um skólamálin hjá mér en ég sókti um i FSu og fas til vara :)
Jæja þá er skólinn byrjaður aftur og allt í lagi með það. Eins og flestir eiga að vita þá er árg91 eða árg07, er ekki viss hvort á að segja :P en jah við erum hvorki meira né minna seinasti árgangur Heppuskóla. Eftir okkur verður engin Heppuskóli :(
Já Samræmd nálgast allt of hratt og er þetta allt að taka enda og þarf maður nú að fara að vinna til að eyga fyrir sér á selfossi á næstu önn (þar að segja ef ég stend mig á prófum ;) ) Þetta er svona ágætlega skemmtilega stressandi tilfinning að vilja fara að heiman.
Jæja ég ætla leggja meiri metnað í næsta blogg því eg hef ekkert meira að segja bili og þarf að haska mér á æfingu.... ISIS er besta hljómsveit í heimi og þið getið öll sætt ykkur við það eða étið skópar! :)
Siffi Böss ákvað að astoða vini í vanda og snéri aftur til Hydra til að spila amk 2x í viðbót. Fyrra skiptið kláruðum við í gær mð því að spila í Loftkastalanum á Músiktilraunum og gékk það bara eins vel og við gátum vonast eftir....mér skillst að við hefðum fengið ófá atkvæði í 2. og þriðja sæti frá áhorfendum og alveg heil 6 í 1. en ég má því miður ekki gefa upp hvaðan ég fæ þetta því mannslíf eru í húfi. En eins og glöggir menn og hlutir vita þá komumst við ekki áfram sem þíðir það að Hydra (Mute) munu stíga á sviðið í sinasta skipti á þrykkjurokki 29 Mars! en í fylgd af því munum við væntanlega taka upp allan okkar skít ásamt nýjum áður óheyrðum lögum og gefum heppnum einstaklingum.
En komum okkur að alvöru efninu, framtíðar planið mitt......eg veit ekki afhverju það endaði svona eins og það er í dag né hvernig í ósköponum eg hef áhuga á að fara að gera það sem mig langar til að gera, en planið er að flytja á heimavist á selfossi og stunda nám við FSU á félagsfræði braut með sálfræði sem aðalfag, svo var planið að meira að segja klára stúdeninn þar eða koma heim seinasta árið fer eftir ýmsu bara og fara svo og stunda nám við háskóla íslands í heimspeki, dont ask. og eftir það mun eg velja mér hvað ég vill gera og hvort það se heima eða ekki og læra eithvað fyrir það ef til þarf og geri það svo, en ég reykna alltaf með því að enda heima fyrir35 ára aldurinn. jabb that's my life as i plan it today, it might still be the same tomorow but who knows? you dont that's who...
en lengra mun þetta blogg ekki vera því eg er næstum búinn með öll mín orð og er líterinn farinn að kosta svolitið mikið, ciao
Þá er komið að því, kveðjublogg til Sigfinns Björnssonar sem hefur sagt skilið við MUTE....hann fann fjarstýringuna og ýtti á takkan (UnMute) Og kveðjum við hann með bros á vör :'D. Að sjálfsögðu verður þetta öm án hans, eð kannski ekki.....allvega öðruvísi, en við reynum nú að redda okkur. Musiktilraunir eru vikuna 19.-23. mars og er planið enþá að skella sér þangað, en þið sem fýluðuð hina einu sönnu Mute sem mun nú ekki vera starfandi undir því nafni held ég mun myndbandið Crazy Talk fara í upptökur í Mars og verður það vonandi komið á rokk.is og youtube í lok apríl ;) En við óskum bara siffa góð gengis í því sem hann tekur sér fyrir hendur í framtíðinni :P
En á léttari nótonum þá er seinasti heimaleikur sindra í kvöld í frystihúsinu kl 8 gegn laugarvatni og vill ég sjá fullan sal þegar ég horfi á áhorfendur af bekknum! fimleikarhópur sindra mun vera með dans atriði í hálfleik og alls konar fínerí, ef þið eruð heppin verða selda súkkulaði þarna en hugmynd mín um að selja dósamat þarna hefur aldrei farið alla leið í gegn til stjórnarinar :D en allveg ég þurfti að koma þessu af herðum mínum og get ég nú haldið áfram að lofa, þakka lesnina. byebye (fuck the spelling shit and málfar)
Well it's that, i'm getting old. Eins og skarpir lesendur vita þá hef ég ekki komið frá mér neinu lengi lengi, það er einfaldlega vegna þess ég hef verið tildurlega sáttur með allt í kringum mig....ég kann ekkert að blogga nema ég sé að drulla yfir eithvað eða rífast út í eithvað....meina til hvers annas eru blogg? :) en jáhm fimtudaginn 8 feb varð ég 16 ára og er maður nú kominn á rúmlega 20. aldurinn og er maður farinn að fá hrukkur og nýjar fellingar og hárið farið að grána, úff. Ég átti mjög rólegan afmælis dag, ég eyddi tíma mínum í skólanum út í sindrabæ að gera klárt fyrir þorrablótið sem haldið var sama kvöld, eftir það fór ég til Hilmars og við tókum Heroes marathon á þetta. Svo var sér skellt heim og farið í sturtu og haldið á stæðsta afmæli sem ég og helgi höfum haldið(fyrir þá sem ekki vita þá fættumst við helgi á nánast sama tíma og erum stolltir af því) en í það mættu 110 manns held ég, en við fengum enga pakka....enda var þetta reyndar þorrablót skólans.....halda allir amk =) Eftir það þá var ferðinni haldið til hellvítis næsta dag á körfubolta mót.....við byrjuðum það mót eins og við hefðum aldrei spilað körfubolta og var það frekar fúllt, en tókum okkur samann í andlitinu og vorum ákveðnir í að gera betur dag2 og ferðum það, spiluðum þanga til við áttum ekkert eftir, en það var ekki nóg og fellum við með sárt ennið aftur niður í c riðil, en áttum ekkert og getum við verið sáttir við það að við gerum okkar besta.....sem var ekki nóg......that kinda sucks but ég er sáttur. hin nýja hljómsveit sem kemur frá "Mute" eða bara Mute eru að öllum líkindum að fara senda frá sér nýtt lag og bið ég alla um að fylgjast með tilginingu á nýju nafni eða nýrri síðu og nýju lagi og öllu tilheyrandi shitti næstu daga, en meira hef eg ekki að segja í bili en ég mun örugglega koma með einhvað skemmtilegt næst en ég þurfti bara að blogga eithvað svo ég setti þetta hér inn......untill next time......it wont be a next time.....i think