23júlí

Efasemdir..

Ég var og er reyndar staddur í vinnuni, staðan en sem komið er er frekar róleg, allvega þá hef ég bara setið hér við afgreiðslukassann og látið hugan reika svona inn og út upp og niður um nokkur mál sem eru mér ofarlega í huga þessa daga, svo punktaði ég einnig niður nokkur stk þunglyndum setningum niður á blað og samndi nokkra hálfkláraða texta eða ljóð, svo kom eitt orð upp sem lét mig stoppa aðeins og hugsa út í annað, orðið var "HEADCASE" og ég rifjaði upp 31 þar sem ég talaði um að allar tilfinningar ættu sér uppruna í hausnum(heilanum) en væru ekki myndaðar af líkamanum eða "sálini" ástæðan fyrir að þetta orð var til þess að ég fór að hugsa um þetta var vegna þess að í smá tíma var ég að spá hvort ég ætti að efast þetta því sko....seinustu daga hef ég verið eithvað "down" ég er búinn að vera í svona frekar slöppu skapi og buinn að vera smá leiður og niðurlútur og já sem sagt bara lioðið hálf ílla, leið og þetta orð kemur upp kviknar eitthvað ljós í dimmu helming heilans og fer allt af stað, allur þessi vanlíðann, samkvæmt minni eigin trú amk, er í hausnum á mér... :/ þessu á ég sjálfur að hafa 100% stjórn yfir. Á en ekki kann ég að beyta því....örugglega einhverjir sem kunna það en eg bara veit ekki hvernig maður á að fara að því en ég er að leita af einhverum bókum sem fjalla um þetta, hingað til hefur engin verið til hérlendis.
En eitt veit ég, ég er miklu betri í því að vera bara down, miklu betri í því heldur en að halda mér glöðum.....er það útaf því það er léttara eða er það utaf því ég vill það?
Hins vegar er ekkert mál að láta sér líða vel að utan...það er ekkert hókus pókus dæmi, meina öll klæðum við okkur í dulargervi hamingjunar áður en við höldum út í kaldan veruleikann, þetta hef ég oft kalla grímuna eða "everyday mask" og ætla ég að blogga um hana sérstaklega þegar ég nenni. En allvega eftir þessar vangavelltur sé ég enga ástæðu til að efast um kafla 2 í 31, sem er í endurskrifun, sá sem er postaður hér á þessari síðu er í raun MJÖG hrá útferð á honum....hann er en í endurskrifun ásamt kafla eitt og kafli 3 og 4 koma inn á sama tíma og þeir koma endurbættir hérna inn einhvurtíman í lok sumars.

Held að meira sé það ekki í bili amk, vina að ég sé ekki að skrifa af mér algjört rugl sem allir munu svo skíta yfir, eða þar að segja ef einhver les þetta....
minni samt á myspace-ið mitt - http//www.myspace.com/marwinsspace takk fyrir
23. júlí 2007 klukkan 12:16
Ottó Marwin
Almennt, 31,606961258558216545204213985699
9 athugasemdir
26júní

Lífiđ er ţessa daganna mér sem lélegt lag...

Svona undanfarna virka daga eru human contact hjá mér í algjöru lámarki en um helgar hef ég verið skemmtilega heppinn að rekast á fólk, tek sem dæmi þessa helgi er ég ætlaði að vera bara að skella mér eitthvert út í ósland eða í hina áttina og setjast, hlusta á ipod og skrifa ljóð þá rakst ég á svona 20 krakka....damit..
Héllt mér með fólki alveg til 7 um morgunin eða eithvað álíka og fór þetta kvöld ekki alveg eins og planað var í upphafi þess.
En já eins og ég var að væla um þá er eins og líf mitt sé leiðinlegt lag á reapeat, alltaf bara eitthvað skemmtileg AÐ FARA gerast en gerist aldrei, juju humarinn er næstu helgi...jibbí, hvað svo? ju oki það er eistnaflug 13 júl...oki lífið er ekki svo slæmt, en ég er búinn að vera farast úr leiðindum seinustu daga....kannski spilar smá inní að næstum sá eini sem þolir mig daglega er fluttur héðann...já kannski er hefur það eithvað að segja...en þá á þetta eftir að skána því allt nýtt venst.
Kannski er það sú staðreynd að ég synjaði umsókn minni til fsu þegar ég var kominn inn....já kannski er það líka einhver partur í því, kannski er það sú staðreynd að ég hef bara verið að einblýna á að allt sé ömurlegt hérna og eina leiðinn til að lýsa upp hlutina er að fara á selfoss...sem er rangt en já þannig er það. svo að það getur spilað inní já...kannski er það að ég er sá eini úr Hydra sem vill eiga þetta efni okkar og nenni að henda´tíma í að taka lögin okkar upp og SUMIR eru að gera það erfitt að við náum þessu......já það er það! got it...
En hvað með það, ekkert sem ég get gert í því.

Ég var spurður nú á dögonum, afhverju á ég(spurjandinn) að halda áfram að lifa?
svarið er......fyrir alla í kringum þig, opnið augun....þið eruð ekkert að lifa fyrir ykkur sjálf heldur ykkar vini og kunningja, endi einn sitt líf verða þeir nánustu fyrir miklum missi og hækkaru líkurnar á að þau bindi enda á sitt líka og sú keðja getur haldið lengi áfram, þannig sjálfsvíg verður aldrei svar nema það sé til að svinda á tryggingum.

En afhverju að hafa þetta eithvað lenga? jú til að segja ykkur frá því að ég er fastur á bls 4 eða svo í "31" og kemur örugglega inn spurningalisti um þa sem ég er búinn að skrifa og svara af minni bestu getu og mun ég örugglega óska eftir spurningum í comment um hluti sem svör eiga ekki að finnast svör við....en það verður ekki fyrr en eftir helgi einhvurtímann...en allvega þá er ég hættur í bili....ekki bögga stafsetningu ég er alveg að fara fá mér svona "púka" og þá mun þetta ógeð ekki sjást lengur, takk fyrir..
26. júní 2007 klukkan 17:42
Ottó Marwin
Almennt, Sögur, Tónlist, 31,606961258558216545204213985699
3 athugasemdir
28maí

Nýtt, Nýr, Ný........ný byrjun?

Ég ákvað að skreyta síðuna aðeins og gera banner eða "haus" eins og þetta heytir á okkar ágæta tungumáli. Þegar ég var að vesenast að setja hausinn inn og laga kubbana og stilla nýja útlitið fattaði ég það að ég blogga að meðaltali 2x á mánuði, ég tel ekki ekki mjög gott miða við það að ég finnst ég vera í fullri vinnu við að vesenast í þessari síðu....þetta ætla ég mér að reyna bæta í sumar og stefni á amk 1 sinni viku.

Allir vita af óhappinu hjá Ragnari, Ósk og Bryndísi og hvað leiddi af því, ég vona bara að þetta fari allt á besta veg og þau nái sér öll andlega og líkamlega og meira vill ég ekki blogga um þennan atburð þar sem mér finnst það ekki vera minn staður.
(Láttu þér batna Bryndís)

Óljóst er hvort ég verði með vinnu í sumar og það er rosalega slæmt þar sem ég stefni á að flytja til selfossar og vantar því allann þann pening sem ég get fengið.
Bestfiskur er búinn í humar í þessum mánuði og mun starfsfólki vera sagt upp að meiri hluta, ég held að það sé en smuga fyrir mig að fá að vera áfram og ætla rétt að vina það þar sem ég fæ hvergi annastaðar vinnu því  allir eru búnir að ráða :S

En ég tek það fram að skrift á kafla 3 í 31,606961258558216545204213985699 er í fullum gangi og gengur allt vel með það en edid á kafla 2 er svolítið erfitt og ég er ekki byrjaður á endurskrifun á kafla 1 en það verður að gerast því hann er alveg einstakega ílla settur upp.

Hydra taka vonandi upp í sumar þessi 3 lög sem við eigum og meira að segja er ég innst inni að vona að ná að bæta við amk 1 lagi sem er komin hugmynd af og ég vona að Hilmar komi með aðra á móti þá getum við náð 5 lögum inná þetta.
Stefnan er að taka upp hjá Galdri (Heiðari) en hann tók vel í þessa hugmynd að mér fanns amk, Við munum gera nokkra diska með coveri og öllu svona til að þurfa ekki að kaupa afmælisgjafir en þetta mun koma á tilkomandi myspace síðu bandsins og einnig allt á rokk.is þannig það verður ekkert mál að nálgast þessi lög (ég mun einnig "seeda" þessum disk á torrent) og munið það ef þið eruð eithvað down yfir því að þetta band sé hætt að kenna siffa um :D nei grín, elska þig Siffi minn (k) og Lejlu líka :P


Prófin eru byrjuð í skólanum (vor) og var íslenskan eins og að drekka vatn (fanns mér amk, vona að ég fái gott út úr henni) og á morgun tek ég stærfræði sem ég er rosalega kvíðin fyrir eins og öllu sem tengist stærfræði.
Ég fæ að sleppa ensku þannig ég get farið beinnt að læra undir Dönsku og nát, en ef einhver veit í hvaða röð prófin eru eftir morgundaginn má hin sami setja það í comment takk takk

Meira ætla ég ekki að bulla að sinni en stenfi á blogg fyrir helgi.. ef ég mun hafa eithvað að segja that is...
Sæl að sinni
                                                                                                        Marwin Gunnarsson
28. maí 2007 klukkan 15:57
Ottó Marwin
Almennt, Sögur, Tónlist, 31,606961258558216545204213985699
4 athugasemdir
24maí

Innlit og update

Ég verð að setja eithvað hingað inn svo að ég hafi einthverjar lesendur, sko ég er ekki búinn að sjá nóg að viðbrögðum fyrir bloggið hér að neðan þannig þið sem lesið þetta og eigi eftir að elsa þetta hér fyrir neðan....lesið það! takk takk

31,606961258558216545204213985699 Kafli3 er byrjaður í skrifun, kafli 2 er en í edid og set ég 3 fyrst inn örugglega og svo nr 2 útaf þeim breytingum sem á honum verða, skoðun mín hefur samt lítið sem ekkert breyst á því. Kafli 3 verður um það sem gerist eftir dauðann(samvæmt þá mér (31) ) og held ég að hann verðir örugglega lengstur til þessa, Kafli 1 er líka í edid þar sem ég var ekki byrjaður með þetta kafladæmi þegar ég skrifaði hann og mun hann lengjast talsvert.

Meira hef ég nú ekki að segja um neitt að sinni, ég kanskki skelli einu bloggi upp á morgun um skólamálin hjá mér en ég sókti um i FSu og fas til vara :)

24. maí 2007 klukkan 17:52
Ottó Marwin
Almennt, Sögur, 31,606961258558216545204213985699
2 athugasemdir
22apríl

31,606961258558216545204213985699 - kafli 2, tómleiki

Mennskar tillfinningar? hvað eru tilfinningar...þegar við höfum eithvað á tillfinninguni hvað erum við þá að finna?
 Ef einhver getur svarað þessari spurningu svo allir séru fullnægðir því svari á hann skilið allan þann auð sem til er í þessum heimi.
Ég er á því að "tilfinningar" séu eithvað sem okkur er kennt að "líða" þegar eithvað ákveðið gerist í lífi okkar og/eða umhverfi, eithvað sem við frá barnsaldri höfum stimplað í okkur að okkur skuli líða svona þegar þessi tími eða atburður er yfir okkur.
Getur einhver haldið því fram að hann hafi fundið fyrir tóminu? Vitum við hvað tómið er? Svo margar spurningar en engin svör.
 Afhverju bregðumst við við með brosi þegar okkur fynnst eithvað "fyndið" eða "glaðlegt", afhverju er bros bara merki um glaðleika en grátur getur farið í báðar áttir....ég veit ekki.
En í þessu bloggi ætla ég að reyna skilgreina þetta "tóm" sem ég held því fram sé eithvað sem við fæðumst með en hyljum svo yfir með ábreiðu blekkinga og látleiks. Ég játa að ég upplifi "tilfinningar" og er stundum í góðu skapi og stundum í vondu.
Að sjálfsögðu get eg ekki neitað tilvist tilfinninga en ég er að reynda segja að við getum verið án þeirra því upprunalega tel ég að við hefðum ekki átt að finna fyrir þeim.
Mannfólk er að verða háðara og háðar á því sem ekki var/er til, eftir 31hundrað ár munum við öll kannski hafa þörf fyrir vélum ti að gera alla einföldu hlutina eins og að þvo fottin okkar, skera matinn eða segja okkur að fara sofa því mannkynið er löngu búið að gleyma þessum hlutum.
Alveg eins og með t.d þunglyndi svo ég taki nú dæmi, Grettir Sterki heyrði aldrei um þunglyndi og hefði hann örugglega hleigið sig máttlausan af manni sem myndi reyna að greina hann þunglyndan og höggt svo af honum hausin (ég trúi ekki að personur íslendinga sagnana hefðu verið til en þið náið því hvert ég er að fara)
Við virðumst spinna upp ný vandamál og nýar þarfir til að gera okkur lífið léttara með að kenna einhverju öðru um en okkur sjálfum og biðja svo til einhvers æðra, ég vona að heimurinn mun taka aðra stefnu en þessa, vona að menn fari að sjá að það er ekkert hærra eða æðra en þeir eru né það er engum að kenna nema þeim hvað sem amar að í þeirra lífi.
Ég held því fram að allt sem á að fylla þetta tóm sé ekkert nema blekking og held að margir séu að því án þeirra eigin vitneskju að fylla líf sitt af rugli.
hver og einn má fara sínar leiðir til að finna þetta tóm en að reyna fylla það er ekkert annað en blekking og látleikur.
Til þess að hafa þetta eithvað lengra þarf ég skoðanir ykkar, endilega tjáið hug ykkar á þessu svo ég geti pælt meira í þessu og seigið mér hvað þið standið eftir þessa lestningu....takk fyrir.

22. apríl 2007 klukkan 17:47
Ottó Marwin
31,606961258558216545204213985699
22 athugasemdir
18desember

31,606961258558216545204213985699 Kafli1, Guđ ekki til

31,606961258558216545204213985699

jæja ég ætla kýla á það, ég ætla blogga um trú mínu og skíta yfir trú annara en ég skal lofa að taka tilit til enstaklings vald um að velja, sem að mínu mati er oft á tíðum ekki gert hjá öðrum trúarflokkum og þá sérstaklega ekki kristnum mönnum.

'Nú til dags virðist það vera í tísku að tala um samræður á milli vísinda og trúarbragða, eins og trúarbrögðin hafi eitthvað gáfulegt til málanna að leggja annað en kreddurnar sínar. Raunin er sú að trúarbrögð hafa ekkert gáfulegt til málanna að leggja en vísindin geta upplýst okkur um ýmislegt varðandi trúarhugmyndir.' "=Hjalti Rúnar Ómarsson um rök gegn guði="

Ég skil ekki þessa þörf hjá mönnum að þurfa að hafa eithvað æðra....eithvað betra eða stærra en maður sjálfur, í minni trú sem ég sjálfur valdi mér og raðaði saman sem ég kalla 31,606961258558216545204213985699 (ég þykist ekki muna þetta) þar er ég að leggja áhærslu á það að það er ekkert æðra en ég sjálfur, og það er ekki útaf ég er eithvað egó. Á bakvið eithvað liggur alltaf eithvað meira og verður eithvað ekki neitt ef ekki er eithvað liggjandi bakvið það.
Þessi trú er eiginlega bara hugsunarháttur, réttur hugsunarháttur á mínu mati....t.d tökum dæmi að einhver drepur sig, hann er alveg pottþétt ekki búinn að hugsa lengra en það að það bindi enda á 'þjáningar hans' þetta er bara heimska því fólkið sem viðkomandi skylur eftir lendir yfirleitt illa í því og lagar þetta ekki neitt fyrir þau, ég tek ekki bók og les afturhliðina á henni og hendi henni svo því alltaf eru til þessi littlu smáatriði sem liggja á bakvið það sem maður á bara að sjá og ef maður rýnir í það þá tekur maður eftir því.
Ég kýs sjálfur að trúa ekki á neitt sem ekki er hægt að sanna og sem eg get eigi sannað fyrir sjálfum mér. Engin rök fyrir tilvist guð enn sem komið er og hefur þessi spurning 'Er guð til?' sem er heiti 2. kafla í fermingarfræðslu bókinni 'Líf með jesú' þessi einfalda spurning hefur byrjað flest heimsins stríð og líka spurningar á borð við hvernig leit guð út eða hvenrig litu vinir hans út, Þetta er eitt af þeim mörgu hlutum sem ég skil ekki við þetta sport að gerast oftrúi á eithvað sem endalaust er hægt að deila um því þetta er örugglega eini stríðs og ófriðarvaldur í heimunum (s.s ósætti) af hverju þarf eithvað að vera fyrir ofan þig sjálfan? of hverju þarftu að biðja einhvern annann um eithvað af hverju geriru bara ekki eithvað í því sjálfur?

'Í ágætri bók sinni Trúarbrögð mannkyns fjallar Dr. Sigurbjörn Einarsson biskup um ýmis trúarbrögð veraldar, allt frá náttúrutrú til fjölgyðistrúar. Eingyðistrúarbrögðin islam fá reyndar að fljóta þarna með, ef ég man rétt.

Það sem sló mig við lestur þessarar bókar á sínum tíma var það hvernig í ósköpunum Sigurbjörn gat verið áfram trúaður eftir að hafa grúskað sig í gegnum öll þessi hindurvitni. Hann dró fram allra handa guði og anda, rakti goðsögur Egypta, Kaldea, Asteka og ég veit ekki hvað og gat á fræðilegan hátt afgreitt þetta allt saman á þeim fosendum að þetta væru goðsagnir, enda getur ekki staðist að allir þessir skaparar fái þrifist.'="Birgir Baldursson gagnrýnir bók er hann nefnir í þessum texta"=

Því er haldið fram að Jesús Kristur sé sonur Guðs, skapara heimsins og mannsins og verið sendur af honum til Jarðar fyrir tveimur aldatugum til kennslustarfa.
Í þann tíð trúðu menn því að illir andar yllu því sem í dag er kallað geðsjúkdómar. Jesús þessi var ekkert að leiðrétta það en sýndi þess í stað nokkur trikk þar sem þessum öndum var t.d. fyrirkomið í svínahjörð. Hann viðhélt semsagt vanþekkingunni, þrátt fyrir að eiga að vita betur.
Og svo þetta rugl um að Guð og Jesús séru alvitir, um að þeir viti allt og hafi svör og hjálp við öllu... Ég ákæri hér með Jesú Krist fyrir þann höfuðglæp gegn mannkyninu að liggja á upplýsingum sem komið hefðu milljörðum manna til hjálpar undanfarin 2000 ár. Öll þjáningin, eymdin og volæðið sem fjarvera lyfja og þekkingar hefur valdið er meiri en tárum taki. Af einhverjum óskiljanlegum orsökum virðist það vilji Guðs og Jesú að mannkynið finni sjálft lausnir á volæði sínu, þó það kosti þögla kvöl tugmilljóna ungabarna sem deyja í fangi móður sinnar, árþúsundum saman.

Þessa letningja vill fólk trúa á, ég spyr....svarar þessir menn í símann? gefa þeir þér merki um tilvist sína er þú biður um hana? nei það er eimitt ástæða þess sem ég vill trúa bara á sjálfan mig og trúa á öll smáatriði í kringum mig, margar hliðar eru til á hvejrum hlut....hvernig við notum hann, hvernig við þekkjum hann, hvernig við sjáum hann, hvernig okkar reynsla er af honum......ef fólk gæti hætt að lyfa í þessari blekkingu og sjá heimin fyrir því sem hann er yrði allt svon ógeðslega einfallt að aðeins pólitísk strýð myndu rýkja og því miður hef eg enga lausn á því, ég bíð engar lausnir í minni trú......fólki munu alltaf standast á og hafa ósætti og öðruvísi skoðanir en ef fólk felur þær á bakvið eithvað æðra þá lækkar sú tjáningar rödd sem þau hafa.

Svo finnst mér alveg ótrulegt að það sé til háskólanám í einhverju sem er ekki til, heimspeki fjallar eiginlega bara um tilvist guðs og rök og umræður um hvort hann sé til eða ekki, þetta vinnur fólk við alveg finnst mér þetta undarlegt enda að loknu stúdentsprófi ætla ég mér að fara í heimspeki í háskóla íslands og gera allt vitlaust þar á bæ =) en þá mun ég vonandi ná að gera trú mína flóknari og ná að betrubæta hana og þori ég að veðja að ég sendi frá mér eitt stykki bókarsgruddu um þetta fyrirbæri

Mörum ykkar finnst nú ég búinn að vera tala í hringi eða bara mæla gegn kristni trú, það er rétt, og ég treysti mér ekki í það að mæla á móti öðrum trúarbrögðum því ég enfaldlega er ekki búinn að kynna mér þær nóg enþá og væri ég til í að fleiri myndu nú taka mig til fyrirmyndar hvað það varðar. ég ætla mér ekki að dæma fólk þanga til ég skoða það sem liggur á bakvið allt, ekki nóg að lesa fræðslubók og vita allt úr henni, heldur þarf maður að lesa á milli línana og þá fyrst máttu setja út á, eins og nú er ég búinn að hella mér yfir Kristin trú í leit af minni trú og sá ég strax að hún var eigi kristinn. Fólk sem er að skemma okkar heim er akkurat fólk sem hellir sér ekki yfir þann hlust sem það vill losna við og með því að losna við hann þá fer einhver undirstaða og þu munnt sjá eftir þynni dómgreind. Ég ætla hætta að sinni og forðast um að tala aftur um þetta því ég er hættur að skylja sjálfan mig og munu örugglega finnast margar villur í texta mínum og margar skoðanir stangast á,
Ég trúi á 31,606961258558216545204213985699 og það er nóg fyrir mig, ég þarf ekki æðra en mig og allt það sem er mér að baki.
18. desember 2006 klukkan 20:58
Ottó Marwin
Almennt, Sögur, 31,606961258558216545204213985699
19 athugasemdir

Ađalvalmynd

Könnun

Hversu stórt ćtti mađur ađ fara (eyrun, núna í 5mm)

Auglýsing

Klukkan

Prófíll

  • Nafn: Ottó Marwin
  • Stađur: Höfn
  • Atvinna: Nemi
  • Hjúskaparstađa: 2-0
  • Um mig: Í breyingu, kemur inn nćstu daga
  • Annađ: ...just living to see the day...

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Undirsíđukubbur

Innskráningar kubbur