LKN verkefni, afhverju ekki ađ skella ţví inn?
-| Siðferði er í raun ekkert nema smekkur og skoðanir okkar sjálfa, Hvernig okkur finnst að hlutirnir eiga að vera, hvernig okkur finnst rétt að vera á almenningi og hvernig almenningur á að hegða sér.
Að sjálfsögðu stjórnum við „hinum“ ekki neitt en siðferði er stæðist þátturinn í þvi´hvað mótar okkur sem manneksju og er hún(siðferðin) okkar stæðsta auðkenni.
Siðferði er ekkert annað en skoðanir okkar, hugsanir og afstöður.
-| Siðfræði er það sem liggur á bakvið siðferði, siðfræði eru siðir sem okkur er kennt og reglur sem okkur er sagt að fylgja, við veljum í raun sjálf alveg hvaða reglum við fylgjum og hvað ekki en okkar reglur þurfa að vera í samræmi við alheimin, við getum ekki farið og drepið fólk vegna þess það er rétt í okkar augum, okkar reglur verða standa samhliða almennum reglum.
Stæðsta dæmi sem hægt er að taka um Siðferðisklemmu, en það er þegar siðferði og siðfræði stangast á, það er hvort klósettsetu skal lokað eða ekki eftir notkun, en ég mun ekki taka það fyrir.
Ég vill halda áfram með fóstureyðingu.
Ég vill byrja á að segja að lífið snýst allt um val og eigum við ekki að hindra frjálst val á svona hlutum. Eða bara einhverjum hlutum, Kennari tók fyrir öfgadæmi þar sem sama stelpan fór 5sinnum á sama árinu í fóstureyðingi, í fyrsta lagi, þá hlítur eitthvað að vera að þeirri manneksju ef hún getur drepið fóstur eftir fóstur og breytir ekkert sínum lífstíl eða drullast til að kaupa smokk, EN það breytir ekki þeirri staðreynd að við eigum ekki að banna henni að gera það.
Að sjálfsögðu er þessari manneksju beinnt á sálfræðing ef ekki geðlækni og gert eitthvað til að fræða hana um skaðsemina sem hún er að gera sjálfum sér og tilvonandi lífi.
Og ætti að skoða það að biðja hana um að eiga og gefa barnið til ættleiðinga.
En það væri alfarið hennar val.
Meina ok, seigum sem svo að við bönnum þessari manneksju að eyða fósti og hún eignast barn, og þar sem henni finnst sjálfsagður hlutur að eyða þessu aftur og aftur þá upplyfir hún ekki móðurtilfinninguna og bindir sig enganveigin við þetta barn og þetta barn mun ekki lifa til árs aldur, hvað erum við þá að sanna? Tala nu ekki um ef hún hefur ekki aðstöðu til að ala upp barn.
En segjum svo að hún reyni sitt besta, og allt gangi upp, þá erum við búin að breyta þessari manneksju en líkurnar munu ALDREI verða barnslífs virði.
Svo vill ég líka benda á þann möguleika að stelpan gæti þess vegna reykt og drukkið eins og svín á meðgöngu og myndi þá barnið geta fæðst algjörlega ónýtt í þennann heim.
Ég veit að ég er ekki að fara nóg í hvert einasta dæmi en ég bara stend í tímaþröng þar sem þetta er tímeverkefni. Ekkert sem ég get gert í því.
-| Fordómar eru það sem ég kalla „stimpla“
Ég persónulega reyni að forðast alla stimpla, en það getur alltaf eitthvað volltið út úr manni sem fólk miskylur og þá er það markmið feill.
Það eru alltof fáir sem taka sér virkilegan tíma í að kynna sér þá hluti sem þeir eru á móti, Ef þú villt hata eitthvað, kynnir þér það, kemmst að öllu sem hægt er að vita og enþá berðu óhug til þess áttu fullan rétt á að vera á móti viðkomandi hlut eða persónu.
Fyrir þetta vill ég taka fyrir oftrúa, og þá ætla ég að taka fyrir einn sérstakann oftúa sem ég man því miður ekki hvað heitir, en fordómar eru algengastir hjá ófsatrúa mönnum og getur engin sagt mér annað.
Þessi maður var á Hornafirði einhverja helgi og lennti ég á háværu tali við hann, þú rökræðir ekki við mann sem að telur sig hafa svör alheimsins, allt sem er annað en hann segir er rangt og þannig er það bara, og ef hann lendir á einhverjum sem svarar honum og nær að klára orð hans byrjar hann bara að syngja, ég fór frá þessum manni alveg brjálaður í skapi vegna þess að þessi maður vildi ekki virða það að ekki allir væru sömu trúar og er það eitt sem mér finnst bibblían vera að gleyma að kenna og það er siðferði gegn öðrum skoðunum, en hún mun aldrei gera það þess vegna á þjóðkirkjan að vera slitinn frá ríkinu svo að stór stofnanir landsins verði HLUTLAUS hvað varðar trú og skoðanir fólks.
Ég reddaði mér ævisögu þessa mans og mér til frekari skemmtunar las ég nýja testamenntið....aftur
Og lærði allt það sem mér gafst kostur á við þennan mann.
Hann er óvirkur alski sem var söngvari og missti líf sitt í eiturlyf og fleira rugli, hann átti erfiða æsku þar sem faðir hans barði hann og mamma hans yfirgaf hann snemma, um 12 ára aldur ef mig minnir rétt var honum komið fyrir á kristilegu fóstuheimili og þar byrjaði hann að syngja fyrir kirkjukór, eftir að hann var 18 fór hann af fóstuheimilinu og fór að gerast söngvari á skemmtistöðum og kynntist hann þar áfengi, Hann tók eftir því að áfengi deyfði hans sársöka og héllt hann því vel í það meðal og fljótt fór hann að drekka af sér vinina og vinnuna. Að lokum gaf annað nýrað sig og var hann lagður inn á spítala. Eftir að hann slapp þar út fór hann í meðferð og rifjaði þar upp kynni sín við Jésus.
Eftir að hann er kominn út úr meðferð fer hann að ferðast og syngja og segja sögur af Jésus.
Hann greinist með Krabbamein í hálsi og kemur svo seinna meir í ljós að hann er með heilaskemmdir og eitthvað var það meira en ég man það bara ekki. Læknar gáfu honum 2 mánuði í mesta lagi, og það var árið 2001. Nú er hann búinn að tilenka lífi sýnu því að ferðast um heimin og syngja og segja sögur af Jésus.
Ekkert að því, að sjálfsögðu er EKKERT af því. En þessi maður sá mig og spurði mig hvort ég vildi ekki koma inn í rútu, NEI seigi ég og seigi honum að sé sé ekki kristinn, og þurfti endilega að bæta við að mér þætti sorglegt að hann skuli að vera troða sinni trú á aðra.
Frá kemur honum svar sem lét mig missa alla mína þolinmæði og ásteri.
Hann sagði „ofcourse, you are wearing that T-Shirt, every thing must make you sick“
Þegar ég heyrði þessa setningu frá honum þá vissi ég nákvæmlega allt sem vita þurfti um þennann mann, sem í raun út af fyrir sig er ekkert nema stimpill EN ég get sagt eftir á að ég veit flest sem hægt er að vita um þennan mann því ég talaði við hann og las æfisögu hans sem hann skrifaði sjálfur og álit mitt á þessum manni breytist ekkert, ég vann svar mitt í sögu hans afhverju hann er svona og hann sagði það sjálfur, hann þjáist af heilaskemmdum.
Þessi maður er dæmi um Fordómafullann mann því hann eins og svo margir aðrir trúaboðar og rósatrúar, þeir hafa öll svörinn, þeir vita hvað allt lífið snýst um, vilja þeir hlusta á aðra sem hafa aðrar skoðani? Kemur ekki til mála, þeir hafa bara rangt fyrir sér.
Þessi týpa af fólki fer mest í mig af ÖLLU. Hver og einn á rétt á sínum skoðunum og á ekki að þurfa gjalda fyrir að vera á öðru spani en einhver annar. Hvernig væri heimurinn þá?
Annas eru fordómar ekkert annað en skoðun sem nær yfir meira en hún á að gera, þú kannski hefur slæma reynslu af pólskum manni og þá teluru alla pólverja fífl og fávita (Tek fram að þetta er ekki óalgengt hér á Íslandi)
Stimplar eiga ekki að vera til.
Ef þú myndir sýna krökkum í 4-10 bekk og meira að segja meira upp mynd af Araba myndi yfirgnæjandi fjöldi hugsa strax „Hryðjuverkamaður“
Þetta er stimpill sem heil þjóð hefur fengið vegna glæðasamtaka af þeim uppruna, fólk gerir sér ekki grein fyrir að í Pakistan og fleiri köndum búa venjulegar fjöldskyldur og ekki allir múslimar kunna að búa til sprengju.
Þetta er hlutur sem ég kenna engu öðru en sjónvarpi og fjölmiðlum um, tek það líka frama ð 85% Sjónvarpsefnis hér á landi er bandaríst. En ég er ekkert að alhæfa neitt.
-| Ég tel að líf okkar sé ekki fyrirfram ákveðið, hef reyndar haldið því fram. Sagði einhvurtíman að við myndum fæðast full skrifuð bók, en þegar ég fór aðeins að pæla í því snérist hugur minn.
Í fyrsta lagi hefur mikið að segja um hvernig ég er í dag er hvernig ég var alin upp en þó eru til menn sem að engavegin tolla undir því sem foreldrar þeirra aldi þá upp til að vera.
En þegar þú fæðist er þér gefið það val um hvað þú ætlar að verða, meðan við erum ung erum við að reyna finna okkur, átta okkur á her við erum. En þessari spurningu verður ekkert svarað fyrr en á leiðarenda er komið.
Við höfum alltaf eitthvað val, við þurfum alltaf sjálf að velja og taka þeim afleiðingum sem fylgja því vali, það er ekkert fyrirfram ákveðið að ég sé að skrifa þetta núna, það var ekkert ákveðið að ég myndi vakna klukkan nákvæmlega 08:46, ég var búinn að ákveða vera aðeins fyrr í því en gat einfaldlega ekki fengið mig til að standa upp.
Ég las góða grein um ákvarðanir og afleiðingar og ætla ég að deila henni með þér/ykkur
ÁkvarðanirKenning: Allar ákvarðanir sem við tökum eru afleiðingar af einhverju sem gerðist í kring um okkur og í kringum um eitthvað í kring um okkur.Rök: Stelpa sefur yfir sig því hún vakti fram eftir með vinkonum sínum, ástæða vökunni var því þær höfðu ekki hist í langan tíma því allar voru í vinnu (vegna þess þær vantaði pening) og skóla (vegna þess að nútímakröfur velta mest á menntun) og höfðu því lítinn tíma til að hittast,
Þessi stelpa átti að mæta í vinnuna snemma morguninn eftir og yfirmaðurinn hringdi í hana (vegna þess að hún var of sein í vinnuna) hún hleypur út og sér mann að blístra og láta glingra í lyklunum sínum (vegna þess að hann var einstaklega ánægður með þennan dag, vegna þess að hann kynntist stelpu og horfði á mjög áhugaverða heimildarmynd sem hafði mjög góðan undirhljóm)
þá fékk stelpan skyndilega vitrun og datt í hug að hún hafi gleymt lyklunum, svo reyndist vera. Hún var tæp á tíma því mamma hennar var líka að fara í vinnuna (aðeins á eftir henni samt því hún var í þeirri vinnu sem krafðist ekki að mæta eins snemma í vinnuna) þess vegna hljóp hún heim til að ná heim á meðan það var opið heima.
Allt eru þetta ákvarðanir sem hún tekur sem umhverfið í kring um hana "neyddi" hana til að taka.
Er ákvörðun þá ekki bara afleiðing af afleiðingum afleiðinga í umhverfinu sem allar spruttu upp frá því að fyrstu atómin sprungu úr mikla-hvelli.
Er eitthvað frábrugðið manneskju að ganga út í búð og stein að renna niður læk?
-Við gerum okkur grein fyrir því að við erum til og höldum að við höfum eitthvað vald á því sem við gerum, samt óhjákvæmilega förum við með strauminum
-Ég hef stundum reynt að fara ekki með straumnum - Ég ætla að fá mér vatnsglas, búinn að hella í glasið og geri mig tilbúinn til að væta varir mínar en helli vatninu svo í vaskinn í staðinn... svo geri ég mér grein fyrir því að ég var áður að hugsa um það að fara gegn straumnum og því afleiðing af því og þ.m. með straumnum.
Spurning: Haldið þið að þið hafið einhverja stjórn á einhverju sem þið gerið?
Við sjálf höfum fulla stjórn yfir hvað við gerum. Og um leið og við gerum eitthvað hefur það afleiðingar, sama á við um það sem gerum ekki, það hefur líka afleiðingar.
Við höfum alltaf val fyrir hendi þótt stundum það virðist ekki vera. Ég held ég þurfi ekki að leggja meiri tök fyrir máli mínu hvað þetta varðar.
-| Oft hefur birst í fréttum umræður um veggjakrot og þeim sóðaskap sem fylgir þessun „klíkum“ sem stunda þetta, Ég skil það að fólk vilji ekki hafa Reykjavíkur borg út krotaða en mér blöskraði þegar ég sá mynd sem fylgdi tiltektri grein, Það var mynd af 24-27 ára Karmlanni sem stóð með krosslagðar hendu í frekar fínum fötum og jakka, hann stóð fyrir framann vegg með svona spray-brúsa verki á og það stóð fyrir neðan myndina „Óbreyttur Borgari þreyttu á þessu kroti“
Þarna hafði fréttamaður bara farið í gagnasafn skrifstofu sinnar og fundið bara einhverja mynd því þetta var Listanemi í háskólanum að kynna lokaverkefnið sitt! Löglega...og var þetta „krot“ hans besta verk til þessa, ástæða þess að ég vissi þetta er að ég las fréttablaðið í sumar og var þessi grein um lokaverkefnið 2 vikum fyrir þessari. Til eru helling fleiri svona dæmi en ég meina fréttamenn eru líka mennskir þótt ótrúlegt sé.(þessi tiltekna setning er dæmi um fordóma)
-| Stæðsta Siðferðis of siðfræðis mál hjá mér er hvernig mín trú stangast við alla hina, við búum í kristilegu samfélagi og finnst mér hugsunarháttur marga þurfa að breytast en það er bara mín skoðun.
Viðheldur fáfræði kristninni?
Eg get spurt eins marga kristna trúa menn og ég vill hér í plássinu ég tel mig vissan á því að ávalt muni yfirgnæfandi meirihluti muni ekki geta sagst hafa virkilega lesið alla bilbliuna eða lifi eftir henni.
Svo ég spyr mig, erum við að halda í þessa trú af sið? Já, fermumst við til að fá gjafir og peninga? Já
Skýrum við börnin bara til þess að gera það? Já
Afhverju þurfum við að stafesta ást okkar með hjónabandi?
Ég fermdist og suma daga sé ég eftir því, mér er sama um allt draslið sem ég fékk og mér er þannig séð sama um peningin mér líður stundum hreinast sagt ílla yfir því að hafa játað trú mína þar sem hún var engin og núna í dag er hún alls ekki til staðar, því meira sem ég pæli í því, því lengra verð ég frá henni.
Ég veit um alveg rosalega marga sem eru skráðir í þjóðkirkjuna afþví bara, við þetta fólk segi ég „Afhverju ekki bara skra sig úr? Og lata því x% af skatt sem er tekinn af þér renna til Háskólans í stað þjóðkirkjunar?“
Ég verð líka stundum alveg hoppandi íllur yfir því að kirkjan sé ríkisrekinn! Stórar stofanir eiga að vera hlutlausar af trú og þjóðerni. Við eigum ekki að kenna kristinfræði í skólum, við eigum að kenna trúabragðafræði því við erum ekki að gera neitt annað en að heilaþvo æskuna.
Það sem mun binda enda á þennan heim eru valdamiklir menn sem trúa!
Svo er allt brjálað í sumum fylkjum í bandaríkjonum því það er verið að kenna þróunarkenninguna?!
Ég eiginlega bara veit ekki hvað ég get sagt við þessu, Mér finnst þetta bara gjörsamlega fáránlegt.
-| Að vera óhlutdrægur í nútíma samfélgi er erfitt, öll höfum við okkar skoðanir burt séð frá því hvort við vitum í raun eitthvað um það málefni sem skoðunin snýst...
Það má í raun alveg halda því fram að allt hér að ofan teljast með sem þættir sem teknir eru inn með í okkar skoðunum.
Það er mest talað um kennara, hellst þá kennara sem kenna 1-7 bekk, það er í raun ekki nokkur leið til að vera hlutlaus í neinu.
Að vera óhlutdrægur er t.d að geta fjallað um ákveðið málefni án þess að setja eigin skoðanir fram fyrir.
Eins og talað er um í kennsluhefti að rasismi á Íslandi sé algengur og að Íslendingar eigi þetta land og menningu og engin annar, það er í raun satt, við eigum þetta land og við stjórnum menningu þess.
Hvað fordóma varðar held ég að þeir séu meira yfirborðskendir en eitthvað annað, við bjóðum fyrsta flokks þjónust til fólks sem kemur hingað til að vinna, við bjóðum ódýrari húsnæði og nóg af vinnu og er það fyrir ofan mörg lönd!
Að sjálfsögðu verða alltaf einhverjir á móti erlendu vinnuafli eða fólki af öðrum uppruna en það er ekkert meira um það hér á Íslandi en annastaðar, að minnsta kosti er okkar ríkistjórn lítið í rasismanum.
Og fyrir þá sem segja það að Frjálslyndir (xF) séu rasistar þá er það gott dæmi um fáfræði, þetta segja einungis þeir sem hafa ekki gefið sér tíma í að lesa stefnu flokksins.
„Íslensk stjórnvöld hafa skyldum að gegna gagnvart þeim útlendingum sem hér lifa og starfa og við viljum stuðla að velferð allra þeirra sem hingað koma. Það er illmögulegt ef engin stjórn er á þeim fjölda sem kemur til landsins á skömmum tíma.“
Frjálslyndir sækjast eftir auknri skyldumenntun fyrir fólk sem kemur hér til að vinna og en auknari kennslu fyrir þá sem ætla sér að setjast hér að, en þeir gera sér samt líka grein fyrir því, og allt of fáir þingflokkar gera það, að við þurfum einhverja stjórn á því flæði inn í landið af fólki.
Núna samt er ég kominn út í bullandi hlutdrægni og finnst mér það ekkert gera nema sanna mál mitt
Hlutlaus kennari er ekki til. Hlutlaust fólk er ekki til.
